Septembermánuður er kominn og það þýðir bara eitt, septemberspá Siggu Kling er mætt. Sigga hefur spáð í spilin fyrir haustin og boðar gott haust. Mánuðurinn verður einkar góður ef marka má spána.

Vatnsberinn á til dæmis eftir að lenda í ótrúlegum aðstæðum, sporðdrekinn gæti orðið fyrir vonbrigðum og eitthvað gott gerist hjá fisknum 18. september. Ef þig langar til að vita hvað framtíðin ber í skauti sér þá er stjörnuspá Siggu Kling neðst á forsíðu mbl.is.
Elsku Steingeitin mín,
það er alveg hægt að segja þú gangir hinn gullna meðalveg, þó það sé alveg eins hægt að segja að þú hafir orðið undarlegum aðstæðum að bráð. Þú hefur hjarta úr gulli en hefur átt erfitt með að treysta öðrum og þú sýnir ávallt mikið sjálfsöryggi hvort sem þú hefur það eður ei.
Farðu neðst á forsíðu mbl.is til að lesa meira.
Elsku Meyjan mín,
í staðinn fyrir að finnast þú vera stressuð skaltu nota orðið spennt. Þú ert nefnilega að spenna lífsbogann og hittir á hárréttan stað. Núna er tími til að taka áhættu, stíga út fyrir boxið. Því það hafa verið og eru búin að vera kaflaskil í þinni lífsbók. Það sem drepur kraftinn þinn og getur haldið heilsu þinni í vondum farvegi er að hanga of mikið heima. Hentu þér út í hringiðu lífsins, prófaðu til dæmis að spila golf eða eitthvað sem þér hefur aldrei dottið í hug að gera áður.
Farðu neðst á forsíðu mbl.is til að lesa meira.
Elsku Vogin mín,
þinn kraftur og einlægni geta espað upp mann og annan. Og það er svo sannarlega erfitt að þagga niður í Voginni. Þú hefur alveg ofsalega góð spil á hendi og átt eftir að taka þinn tíma og hugsa vel og vandlega hvernig þú ætlar að vinna leikinn. Þú átt það samt til að ofhugsa og það getur haft áhrif á það hvort þú hvílist rétt. Og það er það eina sem þú þarft að láta vera í fyrirrúmi þennan mánuðinn.
Farðu neðst á forsíðu mbl.is til að lesa meira.
Elsku Tvíburinn minn,
þú ert svo undurskemmtilegur og virkar alltaf svo jákvæður, þótt það gnísti í hjarta þínu. Það er mikilvægt að þú sjáir að það er eðlilegt að taka sér smátíma til þess að vera fúllyndur, geðstirður og öskra eins hátt og þú getur erfiðleikunum út úr systeminu. Og þá er gott að vera bara í bílnum eða þar sem enginn annar heyrir í þér. Því þá finnurðu hvað þú getur tekið gleði þína snöggt aftur.
Farðu neðst á forsíðu mbl.is til að lesa meira.
Elsku Nautið mitt,
það er sko ýmislegt að gerast í þínu heilabúi þessa dagana og það er uppreisnarandi yfir þér. Þú stígur upp pollrólegur gagnvart því óréttlæti sem þér finnst rigna yfir. Þú færð þá tilfinningu að ekkert sé þér ofviða í þessum málum. Og þú kemur sjálfum þér svo mikið á óvart hversu miklum styrkleika þú býrð yfir þegar þú þarft að sýna hornin.
Farðu neðst á forsíðu mbl.is til að lesa meira.
Elsku Hrúturinn minn,
það er allt að falla í réttar skorður hjá þér. Og þú elskar mest af öllu skipulag, hvort sem þú gerir þér grein fyrir því eður ei. Þú átt eftir að finna fyrir því hversu orðheppinn þú ert og svo ertu líka búinn að læra á það, að þegar þú ætlar að fá einhverju framgengt seturðu ljúfa orku í röddina þína.
Farðu neðst á forsíðu mbl.is til að lesa meira.
Elsku Krabbinn minn,
þú hefur þann hæfileika (eins og önnur krabbadýr) að geta verið inni í skelinni þinni þegar þú þarft. Þú ert búinn að læra að mestu að skýla þér fyrir veseni og vandamálum annarra. Og það gerir þig svo miklu sterkari til þess að takast á við þetta yndislega og litríka líf.
Farðu neðst á forsíðu mbl.is til að lesa meira.
Elsku Ljónið mitt,
að lifa er að þora er setningin sem á að einkenna septembermánuð fyrir þig. Gerðu meira en þú þarft og láttu engan segja þér hvað þú þarft, því þú veist það sjálfur. Steinn Ljónsins er mánasteinn og hann táknar gleði og ef þú skoðar vel þá hefur afstaða tunglsins mögnuð áhrif á þig. Það er nýtt tungl að birtast okkur þann sjöunda september og þá skynjar þú þau tækifæri sem eru í kringum þig til að byggja upp það sem þig langar til og að gera betur.
Farðu neðst á forsíðu mbl.is til að lesa meira.
Elsku Fiskurinn minn,
það eru ýmsir hlutir sem hafa verið stressandi og pirrandi og þú hefur alveg tekið inn í hjarta þitt. Þú hefur þá tilfinningu að þú komist ekki út úr vissum aðstæðum eða getir ekki lagað þær. Þessi tíðni er að snúa sér og þú átt eftir að hugsa: „Af hverju var ég að pirra eða að ergja mig á hinu eða þessu?“ Og þó að þú hafir tekið einhverja áhættu sem þú ert kvíðinn fyrir þá breytist viðhorfið til hennar því það virðist vera þannig að ekkert er eins og það sýnist.
Farðu neðst á forsíðu mbl.is til að lesa meira.
Elsku Sporðdrekinn minn,
þar sem er vilji er vegur. Og með viljann að vopni og vitneskju um að þú getir tekist á við allt sem mætir þér verður leiðin auðveld. Þú finnur út hvernig þú getur haft ótrúlegasta fólk með þér í liði. Án þess að þú þaggir niður í þínum eigin skoðunum.
Farðu neðst á forsíðu mbl.is til að lesa meira.
Elsku Bogmaðurinn minn,
það er svo sannarlega hægt að segja að þetta ár hafi verið merkilegt hjá þér. Og ótrúlega margt verið að gerast þrátt fyrir ástandið í alheiminum. Þú ert svo mikill vinnumaður og það er jú oft sagt að vinnan göfgi manninn.
Farðu neðst á forsíðu mbl.is til að lesa meira.
Elsku Vatnsberinn minn,
mikið áttu eftir að upplifa ótrúlegustu aðstæður sem eru allar komnar til þess að gera þig sterkari. Það getur stuðað þig aðeins að þú sért ekki 100% viss um að þú sért ekki að gera rétt. En þú átt aldrei að vera hundrað prósent viss um neitt, heldur áttu að fylgja tilfinningunni. Þegar þú færð góða tilfinningu fyrir því sem þú hefur fyrir stafni ertu á góðri leið. Þegar þér líður eins og þú sért með heila blokk á bakinu er það svo sannarlega ekki það sem þú átt að gera.
Farðu neðst á forsíðu mbl.is til að lesa meira.