Ef það er eitthvað sem maður þarf til að byrja vikuna af krafti þá er það klárlega þessi uppskrift sem er algjört æði! Lasagna a la Mexíkó getur hreinlega ekki klikkað og það borgar sig að gera nóg til að eiga afgang út vikuna.
Ef það er eitthvað sem maður þarf til að byrja vikuna af krafti þá er það klárlega þessi uppskrift sem er algjört æði! Lasagna a la Mexíkó getur hreinlega ekki klikkað og það borgar sig að gera nóg til að eiga afgang út vikuna.
Það er meistari María Gomez á Paz.is sem á heiðurinn að þessari uppskrift sem verður eflaust í kvöldmat hjá mörgum í kvöld.
Dýrðlegt kjúklinga mexíkólasagna
- 650-700 gr úrbeinuð læri (ég notaði frá Rose Poultry)
- 500-520 gr salsasósa (ég notaði frá Mission en þá eru það 2x 260 gr krukkur) fást m.a í Fjarðarkaup og Krónunni
- 1/2 dl rjómi
- 2 dl maís baunir
- 2 vefjur (ég notaði frá Mission wraps með spelti og þær voru rosa góðar í þetta, verða ekki blautar, fást m.a í Krónunni og Fjarðarkaup)
- Raspaður börkur af einu Lime
- 1 dós sýrður rjómi (ég notaði með graslauk þennan í grænu dollunum)
- 1/2 dl ólífuolía
- salt
- Rifinn mozzarella
- Rifinn cheddar
Hvít sósa á milli
- 1/2 dl rjómi
- 200 gr eða ein askja af Philadelphia rjómaosti Original
- 60 gr parmesan
- 50 gr rifinn cheddar
- 60 gr rifinn mozzarella
- 1/2 tsk timian
- 1/2 tsk oregano
Kryddblanda
- 1/2 tsk cayenne
- 1 tsk paprika
- 1 tsk cumin (ekki kúmen eins og í kringlum)
- 1 tsk timian
- 1/2 tsk svartur pipar
- 1 tsk hvítlauksduft (ath ekki hvítlaukssalt)
- 1 tsk laukduft (onion powder)
- 1/2 tsk chili powder
- 1 tsk oregano
- 1 msk púðursykur
- salt
Getið líka notað annað krydd sem passar við Mexíkómat.....í staðinn fyrir kryddblönduna, en oft er mikið af þessum kryddum til í skápnum hjá manni nú þegar sem fer í þessa kryddblöndu !
Aðferð
- Byrjið á að gera kyddblönduna með því að hræra öllum innihaldsefnum sem fer í hana saman
- Setjið næst úrbeinaða kjúklingaleggi í matvinnsluvél með hnífinn á og ýtið á pulse og maukið þar til er orðið að litlum bitum en ekki of lengi samt því þá verður kjúllinn seigur
- Hitið ólífuolíu á pönnu og setjið kúklinginn út á og saltið vel yfir og hellið allri kryddblöndunni yfir líka (ykkur gæti fundist hún of mikið en hún er það ekki)
- Leyfið að malla þar til kjúklingurinn er orðin hvítur og hellið þá salsasósu, rjóma og limeberki út á. Passið að raspa bara græna lagið af berkinum, ekki ofan í hvíta. Kveikið nú á ofninum á 190 °C blástur eða 200 °C ekki blástur
- Látið malla í 5-10 mínútur á pönnuni og gerið hvítu sósuna á meðan með því að hræra öllu sem er í henni saman í skál og leggja svo til hliðar
- Setjið næst maísbaunir út á pönnuna hrærið og slökkvið undir og byrjið að raða í eldfast mót
- Fyrst er sett kjúklingasalsað, næst vefja, hvít sósa smurð á vefjuna, aftur kjúklingasalsa, vefja, hvít sósa og að lokum annað lag kjúklingasalsa. Sýður rjómi settur efst ofan á og rifnum mozzarella og cheddar stráð yfir allt og gott að setja smá paprikuduft yfir ostinn
- Bakið í ofninum í 20 mín og berið fram með guacamole sem þið finnið uppskrift af hér og sýrðum rjóma