Það kannast margir ferðamenn við að koma við á verslunargötunni Oxford Street í London. Fólki í verslun H&M á götunni frægu brá heldur betur í brún í vikunni þegar stórstjarnan Angelina Jolie verslaði í búðinni ásamt 13 ára gamalli dóttur sinni, Vivienne Jolie-Pitt.

Leikkonan sást skoða föt inni í búðinni ásamt dóttur sinni að því er fram kemur á vef Daily Mail. Jolie sást einnig með venjulega stuttermaboli í fanginu og að lokum sást dóttir hennar halda á poka frá verslunarkeðjunni úti á götu.
Sænski fatarisinn var ekki eina búðin sem mæðgurnar komu við í. Þær heimsóttu einnig leikfangabúðina Hamley's og sást aðstoðarfólk Jolie bera nokkra poka frá leikfangabúðinni út í bíl. Ekki er vitað hvað var í pokunum en yngstu börn Jolie eru 13 ára.
Jolie er búin að vera á ferð og flugi og fór ekki alla leið til Evrópu einungis til þess að kaupa stuttermaboli í H&M. Hún á sex börn en tvær dætur hennar, Zahara og Shiloh, mættu með henni á frumsýningu í Róm á sunnudaginn.