Til í viðræður ef Bretar samþykkja köfur þeirra

Brexit | 28. október 2021

Jean Castex, forsætisráðherra Frakklands, segir Frakkland tilbúið í viðræður við Bretland vegna harðnandi deilna um úthlutun veiðiheimilda í breskri lögsögu. Það er þó með þeim fyrirvara að Bretland gangist við þeim skuldbindingum sem Frakkar segja vera í Brexit-samningunum fyrst.

Forsætisráðherra Frakklands, Jean Castex, segir Frakak tilbúna í viðræður ef …
Forsætisráðherra Frakklands, Jean Castex, segir Frakak tilbúna í viðræður ef Bretar samþykkja kröfur þeirra. AFP

Jean Castex, forsætisráðherra Frakklands, segir Frakkland tilbúið í viðræður við Bretland vegna harðnandi deilna um úthlutun veiðiheimilda í breskri lögsögu. Það er þó með þeim fyrirvara að Bretland gangist við þeim skuldbindingum sem Frakkar segja vera í Brexit-samningunum fyrst.

Jean Castex, forsætisráðherra Frakklands, segir Frakkland tilbúið í viðræður við Bretland vegna harðnandi deilna um úthlutun veiðiheimilda í breskri lögsögu. Það er þó með þeim fyrirvara að Bretland gangist við þeim skuldbindingum sem Frakkar segja vera í Brexit-samningunum fyrst.

Frönsk yfirvöld hafa hótað því að beita ýmsum viðskiptahindrunum til að skaða viðskipti með breskar vörur og afurðir auk þess sem því hefur verið hótað að loka á rafmagnsflutninga til Jersey í Ermarsundi.

Lagt var hald á breskan togara í gær vegna deilunnar en bresk yfirvöld hafa vakið athygli á því að 98% þeirra skipa Evrópusambandsins sem hafa sótt um heimild til veiða í breskri lögsögu hafa fengið veiðileyfi. Hvatti George Eustice, umhverfismálaráðherra Bretlands, til stillingar og sagði aðgerðir Frakka umfram tilefni.

mbl.is