Ef það er eitthvað sem við elskum þá eru það góðir brauðréttir og hér erum við með einn sem ætti að slá í gegn við veisluborðið.
Ef það er eitthvað sem við elskum þá eru það góðir brauðréttir og hér erum við með einn sem ætti að slá í gegn við veisluborðið.
Það er matarbloggarinn Ingibjörg Ásbjörns sem á heiðurinn að þessari snilld.
Mexíkóskur brauðréttur
Uppskrift:
- 12 brauðsneiðar (fínt brauð)
- 4 skinkusneiðar
- 25 pepperóní
- 4 meðalstórir sveppir
- 1/2 rauð paprika
- 1/2 blaðlaukur
- 1/2 krukka sólþurrkaðir tómatar (um 150 g)
- 1/2 poki appelsínugult Doritos
- 2 stk. Mexíkóostar
- 500 ml rjómi
- 200 g rifinn ostur
Aðferð:
- Skerið skorpuna af brauðsneiðunum og skerið hverja brauðsneið í 16 bita.
- Skerið skinku, pepperóní, sveppi, papriku, blaðlauk og sólþurrkaða tómata smátt.
- Raðið brauðbitum, skinku, pepperóní, sveppum, papriku, blaðlauk og sólþurrkuðum tómötum í tvö eldföst mót og brytjið Doritos smátt yfir.
- Rífið niður Mexíkóostinn og setjið í pott ásamt rjómanum og bræðið saman.
- Hellið osta- og rjómablöndunni yfir hráefnin í eldföstumótunum.
- Stráið svo rifnum osti yfir.
- Bakið í 15-20 mínútur (eða þar til osturinn er orðin gullinbrúnn) við 200°C.
Ljósmynd/Ingibjörg Ásbjörnsdóttir
Ljósmynd/Ingibjörg Ásbjörnsdóttir