Crossfit-stjarnan Annie Mist Þórisdóttir hlaut að minnsta kosti rúmar 11 milljónir íslenskra króna í verðlaunafé fyrir frammistöðu sína á Rogue boðsmótinu sem fór fram um helgina. Lenti Annie þar í öðru sæti á eftir Tia-Clair Toomey.

Annie náði bestum árangri af þeim Íslendingum sem boð fengu á mótið.
Sigurvegararnir í bæði karla- og kvennaflokki, Toomey og Justin Medeiros fara með töluvert hærri fjárhæðir heim, eða rúmlega 33 milljónir íslenskra króna hvort um sig.
Jeffrey Adler og Gabriela Migala sem lentu í þriðja sæti far heim með rúmlega 6,1 milljón hvort um sig. Patrick Vellner sem lenti í 2. sæti fer heim með 11 milljónir króna líkt og Annie.