Vinnslustöðin hf. hefur gengið frá samningum um kaup á meirihluta í fiskvinnslufyrirtækinu Hólmaskeri ehf. í Hafnarfirði. Kaupin eru gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins, að því er fram kemur í tilkynningu á vef Vinnslustöðvarinnar.

Hafnfirska fyrirtækið var stofnað á þessu ári og er í eigu hjónanna Alberts Erlusonar og Jóhönnu Steinunnar Snorradóttur. Hólmasker keypti nýverið rekstur fiskvinnslunnar Stakkholts ehf. í Hafnarfirði og voru allir 35 starfsmenn Stakkholts ráðnir til starfa undir merkjum nýja fyrirtækisins. Starfsemin verður áfram í Hafnarfirði og megináhersla lögð áfram á ýsuvinnslu fyrir Bandaríkjamarkað.
Verða kaupin samþykkt af Samkeppniseftirlitinu er stefnt að því að Hólmasker muni kaupa ýsu á markaði til vinnslunnar auk þess að kaupa hluta af ýsu af Vinnslustöðinni og öðrum á markaðsverði.
„Mestöll ýsa sem skip Vinnslustöðvarinnar færa að landi hefur annað hvort verið seld á markaði hérlendis eða flutt úr landi í gámum. Ýsan yrði eftir kaupin að hluta flutt frá Eyjum til Hafnarfjarðar og unnin þar. Hér yrði því stuðlað að því að efla fiskvinnslu á Íslandi,“ segir í tilkynningunni.