Maðurinn með hornin í 41 mánaðar fangelsi

Sjálfskipaði seiðkarlinn Jacob Chansley sem varð yfir nóttu að táknmynd óeirðanna, þegar ráðist var inn í þinghús Bandaríkjanna, og samsæriskenningasamtakanna QAnon, var í dag dæmdur í 41 mánaða fangelsi vestanhafs fyrir aðild sína að óreiðunum. 

Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2020 | 17. nóvember 2021

Jacob Anthony Chansley, ásamt öðrum í múginum æsta sem réðist …
Jacob Anthony Chansley, ásamt öðrum í múginum æsta sem réðist inn í þinghús Bandaríkjanna snemmma í ár. AFP

Sjálfskipaði seiðkarlinn Jacob Chansley sem varð yfir nóttu að táknmynd óeirðanna, þegar ráðist var inn í þinghús Bandaríkjanna, og samsæriskenningasamtakanna QAnon, var í dag dæmdur í 41 mánaða fangelsi vestanhafs fyrir aðild sína að óreiðunum. 

Sjálfskipaði seiðkarlinn Jacob Chansley sem varð yfir nóttu að táknmynd óeirðanna, þegar ráðist var inn í þinghús Bandaríkjanna, og samsæriskenningasamtakanna QAnon, var í dag dæmdur í 41 mánaða fangelsi vestanhafs fyrir aðild sína að óreiðunum. 

Chansley bar eftirminnilega, á meðan uppþotinu stóð þann 6. janúar, loðhatt með hornum og fór fyrir hópi sem braust inn í þinghúsið og skildi eftir skilaboð á borði Mike Pence, þáverandi varaforseta Bandaríkjanna þar sem stóð: „Það er aðeins tímaspursmál. Réttlætið er á leiðinni“.

Viðurkenndi Chansley sök sína í málinu.

mbl.is