Hér erum við með dásamlega máltíð sem tikkar í öll box. Kengúran kemur skemmtilega á óvart – er bæði bragðmikil og meyr. Meðlætið er svo alveg upp á tíu og fremstar þar í flokki eru Camembert kartöflurnar sem þið verðið að prófa.
Hér erum við með dásamlega máltíð sem tikkar í öll box. Kengúran kemur skemmtilega á óvart – er bæði bragðmikil og meyr. Meðlætið er svo alveg upp á tíu og fremstar þar í flokki eru Camembert kartöflurnar sem þið verðið að prófa.
Uppskriftin birtist fyrst í Hátíðarmatarblaði mbl og Hagkaups sem helgað var villibráð að þessu sinni.
Kengúra með camembert-fylltum kartöflum og villisveppasósu
Kengúra
- 500 g kengúra
- 2 stk. hvítlauksgeirar – kramdir
- 4 greinar timían
- Olía
- Smjör
- Salt og pipar
Aðferð:
- Kengúran þerruð, söltuð og pipruð. Þá er panna hituð upp með olíu og þegar hún er orðin vel heit er kengúran sett á hana og steikt í um það bil mínútu, þá er henni snúið við og smjörinu, timíaninu og hvítlauknum bætt út á og steikt í aðra mínútu.
- Sett í eldfast mót með smjörinu og kláruð í ofni á 180°C þar til kjarnhiti nær 55°C, en bitarnir eru mjög misstórir og því erfitt að segja til um eldunartíma.
- Hún er að lokum látin standa í að minnsta kosti 5 mínútur áður en hún er skorin.
Aspas með kirsuberjatómötum og geitaosti
- 2 búnt aspas
- 1 box kirsuberjatómatar
- ½ -1 stk. geitaostrúlla
- 1 ½ msk. balsamik-edik
- Smjör
- Salt og pipar
Aðferð:
- Byrjað er á því að brjóta endana af aspasnum. Þá er hann steiktur á lágum hita á pönnu með smjöri og salti í um það bil 4 mínútur. Tómatarnir eru skornir í ferninga og dressaðir með balsamik-edikinu, salti og pipar.
- Aspasinn er settur á plötu eða í eldfast mót, tómatarnir yfir hann og bakað í ofni á 180°C í um það bil 10 mín.
- Um leið og aspasinn er tekinn út úr ofninum er geitaosturinn brotinn yfir og leyft að bráðna.
Camembert-fylltar kartöflur
- 4 stk. bökunarkartöflur
- 6 sneiðar beikon
- 200 g rjómaostur
- 150 g steyptur camembert-ostur
- 1 dl rifinn Feykir-ostur
- 2 tsk. ítölsk hvítlauksblanda
- Salt og pipar
Aðferð:
- Kartöflur bakaðar á 200°C í um það bil 60 mínútur, eða þar til þær eru mjúkar í gegn.
- Á meðan er beikonið skorið í litla bita og steikt þar til stökkt. Camembert og Feykir-osturinn er rifinn niður á grófu rifjárni, blandað saman við rjómaostinn, hvítlauksblönduna og beikonið, blandan er þá söltuð og pipruð.
- Stór kross er skorinn í kartöfluna og hún kreist svo hún opnist vel, þá er ostablandan sett ofan í kartöfluna og bakað í 5 mínútur í viðbót.
Villisveppasósa
- 30 g þurrkaðir villisveppir
- 250 g kastaníusveppir
- 2 dl rauðvín
- 5 dl rjómi
- Villibráðarkraftur
- Salt
Aðferð:
- Leggið þurrkaða sveppi í bleyti í volgt vatn í 20 mínútur, sigtið þá vatnið frá, þerrið þá og skerið smátt. Kastaníusveppirnir eru skornir í sneiðar og steiktir á pönnunni ásamt þessum þurrkuðu.
- Þegar sveppirnir eru steiktir er rauðvíninu hellt út á og látið sjóða vel niður, þá er rjómanum bætt út á og hann einnig látinn sjóða aðeins niður, gott er að smakka sósuna þarna hvort það vanti aðeins villikraft út í hana og eða smá salt. Má þykkja með maizena-mjöli ef þarf.