Við elskum að vera stóryrt og þessi stendur sannarlega undir því. Hér erum við með uppskrift að ís sem er algjörlega geggjaður.
Uppskriftin birtist í Hátíðarmatarblaði mbl og Hagkaup. Blaðið er hægt að nálgast
HÉR.
Rjómaís með hnetutoppskurli
- 5 dl rjómi
- 2 dl niðursoðin mjólk
- 150 g Síríus-rjómasúkkulaði með appelsínubragði og karamellukurli
- 80 g hnetutoppskurl
Aðferð:
- Rjóminn er þeyttur og niðursoðnu mjólkinni hellt varlega saman við.
- Þá er súkkulaðið skorið smátt og blandað saman við rjómablönduna ásamt hnetunum.
- Hellt í form og fryst.
mbl.is/Kristinn Magnússon