Graskerssalat sem bragð er af
- 600 g grasker, ég notaði butternut
- 400 g rauðlaukur
- 2 msk. avókadóolía
- 1 tsk. rósmarín
- 1 tsk. kanilduft
- 1 tsk. sjávarsalt
- ½ tsk. nýmalaður svartur pipar
- 1 ferskur chili, skorinn í þunnar sneiðar
- dukkah til að strá yfir
Aðferð:
- Byrjið á að hita ofninn í 200°C og setja bökunarpappír á ofnskúffu.
- Afhýðið graskerið og skerið í 2x2 cm bita og skrælið rauðlaukinn og skerið í báta. Setjið á ofnskúffuna, kryddið og skvettið olíunni yfir.
- Bakið í 15-20 mínútur eða þar til byrjar að gyllast og brenna smá í köntunum.
- Stráið dukkah yfir og berið fram.