Lopapeysan sem leikkonan Aldís Amah Hamilton klæðist í þáttunum Svörtu sandar hefur vakið töluverða athygli í hópum tileinkuðum handavinnu á Facebook. Fyrsti þáttur Svörtu sanda var frumsýndur á Stöð 2 í gær, sunnudag.

Peysan sem Aldís klæðist í þáttunum, sem og í kynningarefni fyrir þættina, heitir Gerður og er frá útivistarvöruversluninni Icewear. Hún er því ekki handprjónuð eins og margir handavinnuunnendur vonuðust til heldur vélprjónuð. Þrátt fyrir það er hún einstaklega falleg en hún er prjónuð úr íslenskri ull. Gerður kostar 17.990 hjá Icewear og eru enn nokkur eintök til.