Arnar Grant, einkaþjálfari hjá World Class, er farinn í tímabundið leyfi frá störfum í kjölfar frásagnar ungrar konu um ástarsamband þeirra. Þetta staðfestir eigandi World Class, Björn Leifsson, við fréttastofu Vísis.

Málið tengist frásögn hinnar 24 ára gömlu Vitaliu Lazarevu í hlaðvarpsþætti Eddu Falak, Eigin konur, fyrr í vikunni. Þar lýsti hún alvarlegu kynferðislegu ofbeldi sem hún var beitt af kærastanum sínum, sem væri þekktur einkaþjálfari, og þremur vinum hans í sumarbústað.
Í viðtalinu lýsti hún því einnig hvernig maðurinn sem hún var í sambandi við beitti hana andlegu ofbeldi með því að tala niðrandi um hana og bauð vinum sínum ítrekað að sofa hjá henni.
Þá hefur einnig verið greint frá því í dag að fjórir aðrir aðilar sem bendlaðir eru við frásögn Vitalíu séu farnir í tímabundið leyfi eða hafi stigið til hliðar í kjölfar frásagnarinnar. Þeir eru Ari Edwald, Logi Bergmann, Hreggviður Jónsson og Þórður Már Jóhannesson.
Vítalía lýsti því í hlaðvarpsþættinum Eigin konur hvernig mennirnir hefðu brotið á sér. Um er að ræða tvö aðskilin mál, annað þeirra átti sér stað í heitum potti í sumarbústað með ástmanninum og þremur vinum hans. Hitt átti sér stað í golfferð.
Hún segir þá hafa farið yfir öll sín mörk og mörk allra þeirra sem voru í pottinum, m.a. ástmanns hennar, sem var einnig á staðnum þegar þetta átti sér stað. Í stað þess að segja eitthvað hafi hann þó yfirgefið pottinn og skilið Vítalíu eina eftir með mönnunum.
Hún segist hafa rætt við alla mennina í síma um hvað gerðist. Þá hafi hún einnig sagt þeim að hún hygðist leita réttar síns. „Ég sagði þeim það og þeir leituðu aldrei aftur til mín,“ segir Vítalía í viðtalinu.