Tónlistarkonan Britney Spears fékk loksins sjálfræði í nóvember eftir 13 ára bið. Hún hefur gert ýmislegt sem hún hefur ekki gert í langan tíma og um síðustu helgi fékk hún sér meðal annars rauðvínsglas.

Spears greindi frá rauðvínsdrykkjunni á instagramsíðunni sinni. „Ég er viss um að það er skrítið að ég dansi svona mikið við Madonnu,“ skrifaði Spears meðal annars og sagðist vera að leyfa sér núna. „Ég meina ég fékk mér fyrsta rauðvínsglasið um síðustu helgi! Ég beið í 13 ár.“
Rauðvínsglasið er þó ekki fyrsta vínglasið sem Spears hefur drukkið að undanförnu þar sem hún greindi frá því í nóvember að hún hefði fagnað frelsi sínu með kampavínglasi. Lögráðamenn Britney höfðu áður völd yfir fjárhag hennar, tóku ákvarðanir er vörðuðu ferilinn og fengu að hafa áhrif á heimsóknir hennar til barnanna sinna og mögulegt hjónaband.