Brim hefur selt skuldabréf fyrir 5 milljarða

Brim | 14. janúar 2022

Brim hefur selt skuldabréf fyrir 5 milljarða

Brim hefur í samstarfi við Íslandsbanka lokið við sölu skuldabréfa í bláum og grænum flokki fyrir 2,5 milljarða króna og hafa því náð að selja skuldabréf af þessum toga fyrir fimm milljarða króna.

Brim hefur selt skuldabréf fyrir 5 milljarða

Brim | 14. janúar 2022

Vel hefur gengið að selja græn og blá skuldabréf Brims.
Vel hefur gengið að selja græn og blá skuldabréf Brims. mbl.is/​Hari

Brim hefur í samstarfi við Íslandsbanka lokið við sölu skuldabréfa í bláum og grænum flokki fyrir 2,5 milljarða króna og hafa því náð að selja skuldabréf af þessum toga fyrir fimm milljarða króna.

Brim hefur í samstarfi við Íslandsbanka lokið við sölu skuldabréfa í bláum og grænum flokki fyrir 2,5 milljarða króna og hafa því náð að selja skuldabréf af þessum toga fyrir fimm milljarða króna.

Fram kemur í tilkynningu á vef Brims að skuldabréfin nú var verið að selja eru óverðtryggð og með lokagjalddaga þann 22. október 2026. Þá bera bréfin 4,67% vexti sem greiddir eru ársfjórðungslega en höfuðstóll skuldabréfanna er greiddur í einni greiðslu á lokagjalddaga.

Seld voru skuldabréf að nafnverði 2.500 milljónir króna á ávöxtunarkröfunni 5,10%. Áður höfðu verið seld skuldabréf að nafnverði 2.500 milljónir króna, og hafa því samtals verið seld skuldabréf í flokknum að fjárhæð 5.000 milljónir króna sem er hármarksstærð flokksins.

Samhliða hefur félagið gert gjaldmiðla- og vaxtaskiptasamning til að mæta greiðsluflæði skuldabréfanna og umbreyta því yfir í fasta 2,0% vexti í evru fram til lokagjalddaga skuldabréfanna.

Stefnt er að uppgjöri viðskiptanna þann 24. janúar næstkomandi og verður óskað eftir því að bréfin verði tekin til viðskipta á Nasdaq Iceland í framhaldinu.

mbl.is