Mikil óánægja var á meðal stjórnarandstöðunnar á Alþingi í dag vegna fjarveru Bjarna Benediktssonar fjármála- og efnahagsráðherra en fyrsta mál á dagskrá var frumvarp ráðherrans um að fresta staðgreiðslu skatta og greiðslu tryggingagjalds til stuðnings fyrirtækja í veitingarekstri.

Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði að um væri að ræða risastórt mál sem varðaði efnahag hluta þjóðarinnar og því væri það ótrúlegt að fjármála- og efnahagsráðherra væri ekki viðstaddur.
Því spurði Helga Birgi Ármannsson forseta þingsins hvað valdi fjarveru Bjarna. „Er hæstvirtur fjármálaráðherra í rauninni óþarfur þegar kemur að rekstri ríkissjóðs.“
Birgir svaraði þá að Bjarni væri erlendis.
„Mig langar að rifja upp að fyrir 54 mínútum minnti forseti okkur á að fjarvistarskrá lægju frammi eins og alltaf er gert við upphaf þingfundar. Ég prentaði hana út. Á henni er eitt nafn. Það er ekki nafn Bjarna Benediktssonar hæstvirts fjármálaráðherra,“ sagði Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, í kjölfar svars Birgis.
Andrés spurði því Birgi hvernig standi á því að fjarvistarskráin sé ekki rétt. Þá benti hann á að dagsetning þingstarfa hefði legið fyrir frá desemberlokum og því ættu þingmenn rétt á að vita hvaða erindi Bjarni ætti erlendis.
„Ef ráðherrann er í fríi þá er það móðgun,“ sagði Andrés og benti Birgir þá á að staðgengill fjármála- og efnahagsráðherra væri viðstaddur og að hann vissi ekki um erindi Bjarna erlendis.
„Mér finnst það bagalegt að ráðherrar almennt sýni þinginu ekki meiri virðingu,“ sagði Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar.