Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, hefur fallist á að birta skýrslu Sue Gray í fullri lengd eftir að lögreglurannsókn málsins lýkur, en tiltekin atriði voru afmáð úr skýrslunni áður en hún var birt, til að koma í veg fyrir hlutdrægni í ákvarðanatöku í máli lögreglunnar um fésektir.

Lögreglan í Lundúnum hefur ekki gefið upp nákvæmari tímaramma í tengslum við rannsóknina, en þann að hún ætti ekki að taka meira en ár. Til rannsóknar eru tólf veislur og gögnin sem liggja fyrir í málinu telja yfir 300 ljósmyndir og 500 blaðsíður.
Boris Johnson var viðstaddur þrjár af þessum veislum, hið minnsta, að því sem fram kemur í skýrslunni.
Þá mun forsætisráðherrann einnig óska eftir því að Sue Gray, sérstakur saksóknari og höfundur skýrslunnar, uppfæri skýrsluna ef ný gögn koma fram í málinu.
Johnson kom fram fyrir þingið í dag og baðst afsökunar á því sem misfórst við veisluhöld í Downingstræti 10 meðan á útgöngubanni stóð, og því hvernig ásakanir um brot á sóttvarnareglum hafa verið meðhöndlaðar.
Málið hefur þó vakið reiði og vantraust á hendur forsætisráðherranum og einhverjir vilja að hann víki úr embætti. Johnsons stendur því í ströngu nú að tryggja sér nægilegan stuðning á þinginu. Grannt er fylgst með gangi mála á BBC.