Linda Ben á heiðurinn að þessari snilld sem tikkar í ansi mörg box. Kökurnar eru vegna án þess þó að missa neitt af bragðgæðunum sem óhjákvæmilega fylgja smjöri og rjóma.

„Þessar bollakökur eru alveg ótrúlega góðar! Súkkulaðibollakakan sjálf er afar djúsí og rakamikil með góðu súkkulaðibragði. Smjörkremið er silkimjúkt, einstaklega fluffý og loftmikið en dökka pralín súkkulaðið með kókosfyllingunni frá Nóa Síríus leikur þar aðalhlutverkið.
Kókosfyllta pralín súkkulaðið frá Nóa Síríus er tímabundin vara sem ég mæli með að enginn láti fram hjá sér fara. Það er alveg óhemjugott og á ég erfitt með að halda aftur að mér þegar ég á það til. Ég er virkilega að vona að þetta súkkulaðið muni koma til með að verða klassík hjá Nóa Síríus. Súkkulaðið er vegan.
Ég er alltaf að búa til fleiri ljúffengar vegan baksturs uppskriftir, litla frænkan mín er með ofnæmi og vegan kökur henta henni því afskaplega vel. Þessar súkkulaðibollakökur henta til dæmis þeim sem eru vegan, með eggjaofnæmi, hnetuofnæmi og mjólkurofnæmi, en að sjálfsögðu eru þær fyrir alla!“ segir Linda að lokum.