Það er fátt sem toppar gott kjöt í karrí enda í uppáhaldi hjá mörgum. Hér er uppskrift sem er algjörlega upp á tíu og við hvetjum ykkur til að prófa.
Það er fátt sem toppar gott kjöt í karrí enda í uppáhaldi hjá mörgum. Hér er uppskrift sem er algjörlega upp á tíu og við hvetjum ykkur til að prófa.
Kjöt í karrí upp á gamla máta mátann
- 1 kg súpukjöt, framhryggur eða annað lambakjöt á beini
- 1 l vatn
- 2 lárviðarlauf
- pipar
- salt
- 4-5 gulrætur
- 1 laukur
- 30 g smjör
- 2-3 tsk. karríduft
- 2.5 msk. hveiti
Aðferð:
- Skolið kjötið vel og setjið í pott. Hellið köldu vatni yfir og hitið að suðu og fleytið froðunni ofan af.
- Bætið við lárviðarlaufi, pipar og salti í pottinn og látið sjóða við vægan hita í 25 mínútur.
- Skerið gulrætur og lauk og setjið út í. Látið sjóða í 25 mínútur í viðbót.
- Takið kjötið og gulrætur upp úr og haldið því heitu.
- Bræddu smjörið í öðrum potti. Stráið karríduftinu yfir, hrærið og látið krauma í 1/2 mínútu.
- Stráið hveitinu yfir og hrærið þar til það hefur samlagast smjörinu.
- Hellið soði saman við smátt og smátt þar til sósan er hæfilega þykk og hrærið stöðugt á meðan.
- Látið sósuna sjóða í 5-10 mínútur og bætið örlítið af rjóma eða mjólk saman við eftir smekk og smakkið til.
- Berið fram með hrísgrjónum eða kartöflum.
Ljósmynd/Íslenskt lambakjöt