Þrír karlmenn hafa verið sakfelldir fyrir að hafa framið hatursglæp, fyrir morðið á Ahmaud Arbery. Hann var úti að skokka í gegnum hverfi nálægt Brunswick í Georgíu þegar hann var myrtur.

Mennirnir höfðu þegar verið sakfelldir og dæmdir í lífstíðarfangelsi fyrir morðið á Arbery í byrjun janúar en komu aftur fyrir dóm fyrir hatursglæp.
Mennirnir þrír heita Travis McMichael, Gregory McMichael, faðir Travis, og nágranni þeirra William Bryan.
Feðgarnir Travis og Gregory McMichael höfðu elt Arbery er hann var úti að hlaupa í Brunswick í Georgíu í Bandaríkjunum í febrúar árið 2020. Þeir sögðust telja að Arbery hefði átt þátt í innbrotum í hverfinu. William Bryan tók upp skotárásina.