Bannar botnvörpuveiðar í Skápnum

Smábátaveiðar | 2. mars 2022

Bannar botnvörpuveiðar í Skápnum

Veiðar með botnvörpu hafa verið bannaðar í „skápnum“ svokallaða sem er innan 12 sjómílna út af Glettinganesi. Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, hefur undirritað reglugerð þess efnis og er búist við því að þetta muni stuðla að auknum afla handfæra- og línubáta á svæðinu, að því er fram kemur í tilkynningu á vef stjórnarráðsins.

Bannar botnvörpuveiðar í Skápnum

Smábátaveiðar | 2. mars 2022

Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, hefur undirritað bann við veiðum með botnvörpu …
Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, hefur undirritað bann við veiðum með botnvörpu í syðsta hluta skápsins og er gert ráð fyrir að þetta muni auka afla handfæra- og línubáta. mbl.is/Árni Sæberg

Veiðar með botnvörpu hafa verið bannaðar í „skápnum“ svokallaða sem er innan 12 sjómílna út af Glettinganesi. Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, hefur undirritað reglugerð þess efnis og er búist við því að þetta muni stuðla að auknum afla handfæra- og línubáta á svæðinu, að því er fram kemur í tilkynningu á vef stjórnarráðsins.

Veiðar með botnvörpu hafa verið bannaðar í „skápnum“ svokallaða sem er innan 12 sjómílna út af Glettinganesi. Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, hefur undirritað reglugerð þess efnis og er búist við því að þetta muni stuðla að auknum afla handfæra- og línubáta á svæðinu, að því er fram kemur í tilkynningu á vef stjórnarráðsins.

Þar segir að lokunin gildi frá júlí til desember á þessu ári hverju og taki til veiða „með fiskibotnvörpu verði bannaðar á umræddu svæði milli 6 og 12 mílna út af Glettingarnesi, það er að segja syðsta hluta Skápsins.“

Vakin er atghygli á því að heimastjórn Borgarfjarðar eystra hafi haft samabnd við ráðuneytið og þar beðið um að mörkuð yrði stefna um lokun á veiðum með botnvörpu á svæðinu.

Við undirbúning ákvörðunarinnar var aflaði matvælaráðuneytið gagna frá Fiskistofu sem „sýna að með lokuninni má búast við að afli línu og handfærabáta aukist umtalsvert en að lokunin hafi lítil sem engin neikvæð áhrif á aflabrögð þeirra togbáta sem stunda veiðar á svæðinu.“

mbl.is