Félag um réttlæti í sjávarútvegi stofnað

Smábátaveiðar | 5. mars 2022

Félag um réttlæti í sjávarútvegi stofnað

Strandveiðifélag Íslands, félag um réttlæti í sjávarútvegi, mun halda stofnfund í gamla Sjómannaskólanum við Öldugötu 23 í Reykjavík á morgun klukkan 14.00.

Félag um réttlæti í sjávarútvegi stofnað

Smábátaveiðar | 5. mars 2022

Félagið hyggst ná tilgangi sínum með öllum mögulegum leiðum, þar …
Félagið hyggst ná tilgangi sínum með öllum mögulegum leiðum, þar á meðal málssóknum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Strandveiðifélag Íslands, félag um réttlæti í sjávarútvegi, mun halda stofnfund í gamla Sjómannaskólanum við Öldugötu 23 í Reykjavík á morgun klukkan 14.00.

Strandveiðifélag Íslands, félag um réttlæti í sjávarútvegi, mun halda stofnfund í gamla Sjómannaskólanum við Öldugötu 23 í Reykjavík á morgun klukkan 14.00.

Tilgangur félagsins er að standa vörð um og berjast fyrir rétti almennings til handfæraveiða við Íslandsstrendur og koma í veg fyrir mismunun í lögum um fiskveiðistjórnun, sem brjóti í bága við stjórnarskrá, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá félaginu.

„Félagið vísar í álit mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna frá því í október 2007 þar sem fram kemur að íslensku lögin um stjórn fiskveiða brjóti í bága við 26. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi um jafnrétti allra manna,“ segir þar.

Þá segir að tilgangi sínum hyggist félagið ná með öllum mögulegum leiðum, jafnvel með málsókn gegn íslenska ríkinu og stjórnsýslukærum gegn handhöfum löggjafar- og framkvæmdavalds.

mbl.is