Hér gefur að líta lambalæri sem ætti að æra liðið enda bragðsamsetningar hér sem eru í uppáhaldi hjá ansi mörgum. Dásamlega gott og með geggjuðu meðlæti.
Hér gefur að líta lambalæri sem ætti að æra liðið enda bragðsamsetningar hér sem eru í uppáhaldi hjá ansi mörgum. Dásamlega gott og með geggjuðu meðlæti.
Sinneps- og hunangsgljáð lambalæri
- 1 stk. lambalæri
- 600 g kartöflur
- 50 g smjör
- 80 g rifinn ostur
- 4 msk. grófkorna sinnep
- 2 msk. hunang
Timjan
- 1 box sveppir
- 1 shallot laukur
- 3 dl lambasoð (eða vatn og kjötkraftur)
- 2 msk. rauðvínsedik
- 2 dl rjómi
Aðferð:
- Hitið ofn í 180°C, setjið lærið í ofnbakka og smyrjið með ögn af olíu og kryddið vel með salti og pipar.
- Brúnið í í 20 mínútur, blandið sinnepi og hunangi saman ásamt ögn af timjan og smyrjið lærið með.
- Lækkið hitann í 160°C og eldið áfram í u.þ.b. klukkustund, eða þar til kjarnhiti passar ykkar smekk, sem fyrir læri er oftast á bilinu 58-68 °C.
- Þvoið og sjóðið kartöflur í 16 mínútur, hellið af þeim vatninu og setjið í ofnbakka, kremjið kartöflurnar svo að þær springi ögn en haldi þó forminu að mestu.
- Dreifið smjöri yfir kartöflurnar og rifnum osti, bakið við 160°C í 20 mínútur eða þar til osturinn hefur brúnast.
- Skerið shallot-lauk fínt, sveppi í báta og kraumið í potti við meðalhita með olíu og ögn af smjöri, bætið ediki við og látið það gufa upp við suðuna.
- Soði er bætt við og því næst rjóma, þykkið ef þarf og smakkið til.
- Mælum ávallt með notkun á kjarnhitamæli við ofnsteikingu!
Ljósmynd/Íslenskt lambakjöt