Nýjasta kærasta fjöllistamannsins Kanye West, Chaney Jones, segist ekki líta út eins og fyrrverandi eiginkona Wests, Kim Kardashian. Jones hefur oft verið líkt við Kardashian, enda þykir fatastíll þeirra og vaxtalag nokkuð líkt.

„Nei, í rauninni ekki,“ sagði Jones þegar blaðamaður TMZ spurði hvort henni fyndist hún lík Kardashian. Þá var hún einnig spurð hvort þau West ræddu mikið um Kardasian. „Nei, við tölum ekki um hana,“ sagði Jones og tók ekki við fleiri spurningum frá blaðamanninu.
Jones hefur án efa fengið kafla úr tískubók Kardashian lánaðan en á stefnumóti með West fyrir rúmri viku klæddis hún svörtum, þröngum leðurbuxum og leður stígvélum í stíl. Kardashian klæddist einmitt svörtum leðurbuxum og stígvélum á tískuvikunni í Mílanó nokkrum vikum áður.