Hætti við brjóstastækkun

Britney Spears | 25. mars 2022

Hætti við brjóstastækkun

Söngkonan Briteny Spears íhugaði að stækka á sér brjóstin nýlega. Stjarnan segir að faðir hennar, James Spears, hafi líkamssmánað hana í mörg ár. Svo vildi til að hún hitti ekki lýtalækninn þegar á hólminn var komið og hún hefur ekki snúið aftur. 

Hætti við brjóstastækkun

Britney Spears | 25. mars 2022

Britney Spears.
Britney Spears. AFP

Söngkonan Briteny Spears íhugaði að stækka á sér brjóstin nýlega. Stjarnan segir að faðir hennar, James Spears, hafi líkamssmánað hana í mörg ár. Svo vildi til að hún hitti ekki lýtalækninn þegar á hólminn var komið og hún hefur ekki snúið aftur. 

Söngkonan Briteny Spears íhugaði að stækka á sér brjóstin nýlega. Stjarnan segir að faðir hennar, James Spears, hafi líkamssmánað hana í mörg ár. Svo vildi til að hún hitti ekki lýtalækninn þegar á hólminn var komið og hún hefur ekki snúið aftur. 

„Það er klikkað að búa í Los Angeles... Ég var að hugsa um að fara í brjóstastækkun... brjóstin mín eru frekar lítil... Ég meina með rétta brjóstahaldaranum eru þau allt í lagi en ég var forvitin hvað læknir myndi segja,“ skrifaði stjarnan á Instagram. Hún sagði að brjóstin hefðu minnkað að undanförnu þar sem hún léttist um rétt rúmlega þrjú kíló sem hún segir mikið fyrir sig. Spears fór alla leið á lýtalæknastofu en komst aldrei inn til læknisins. 

Söngkonan virðist eins og er ætla að velja náttúrulega fegurð sína. Hún segir föður sinn hafa niðurlægt hana og líkamssmánað í mörg ár. „Pabbi minn sagði alltaf að ég væri feit og að vera þung stelpa á sviði var ekki skemmtilegt... það var niðurlægjandi.“

Spears segist vera fórnarlamb útlitsdýrkunar eins og aðrar konur. „Ég sjálf trúi því að fólk geti verið hamingjusamt hvort sem það er grannt, gamalt, feitt, hvað sem er... ef þú ert hamingjusöm og með góða orku ertu 100 prósent aðlaðandi,“ skrifaði Spears. Hún segir að hún hafi ekki náð langt vegna útlitsins. 

Að lokum hvetur söngkonan fólk til þess að læra að elska sjálft sig. 

mbl.is