Pasta með hráskinku og mozzarella

Pasta með hráskinku og mozzarella

Þessi pastaréttur er með eindæmum bragðgóður og einfaldur. Hráskinkan hefur þann eiginleika að gera allan mat betri og mozzaerella osturinn ætti að vera í öllum mat.

Pasta með hráskinku og mozzarella

Hvað er í matinn í kvöld? | 5. apríl 2022

Ljósmynd/Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir

Þessi pastaréttur er með eindæmum bragðgóður og einfaldur. Hráskinkan hefur þann eiginleika að gera allan mat betri og mozzaerella osturinn ætti að vera í öllum mat.

Þessi pastaréttur er með eindæmum bragðgóður og einfaldur. Hráskinkan hefur þann eiginleika að gera allan mat betri og mozzaerella osturinn ætti að vera í öllum mat.

Hérna höfum við rétt sem er dæmi um það hvað góð hráefni eru mikilvæg. Ekkert flókið - öllu blandað saman í eitt fat og útkoman er dýrindis kvöldmatur eða réttur í saumklúbbinn eða á veisluborðið.

Pasta með hráskinku og mozzarella kúlum

  • 2 öskjur kokteiltómatar
  • 3 stk. hvítlauksrif
  • 1⁄2 tsk. chili flögur
  • 2 tsk. salt
  • handfylli ferskar kryddjurtir, t.d. timjan eða rósmarín
  • 500 g fusilli pasta
  • 100 g grænt pestó
  • 100 g spínat
  • salt og pipar
  • 180 g mozzarella perlur eða kúlur
  • 80 g hráskinka
  • handfylli fersk basilíka

Aðferð:

  1. Hitið ofn í 200°C.
  2. Setjið tómatana í eldfast mót ásamt ólífuolíu.
  3. Kremjið hvítlaukinn saman við og dreifið salti, chili flögum og kryddjurtum yfir.
  4. Hrærið öllu létt saman og bakið í ofni í 10-15 mín.
  5. Sjóðið pastað á sama tíma samkvæmt leiðbeiningum, þegar það er full soðið, sigtið vatnið frá og setjið pastað aftur í pottinn.
  6. Blandið pestó, spínati og helmingnum af mozzarella ostinum saman við pastað.
  7. Takið þá eldfasta mótið úr ofninum og blandið pastanu saman við tómatana í eldfasta mótinu.
  8. Sáldrið salti og pipar saman við eftir smekk.
  9. Þá er restinni af mozzarella ostinum dreift yfir ásamt hráskinkunni.
  10. Setjið aftur inn í ofn í u.þ.b. 10 mín.
  11. Skerið basilíkuna niður og dreifið yfir réttinn þegar hann kemur úr ofninum.

Höfundur: Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir

Ljósmynd/Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir
mbl.is