Lúxus lambahryggur á páskaborðið

Uppskriftir | 9. apríl 2022

Lúxus lambahryggur á páskaborðið

Ef það er eitthvað sem við Íslendingar elskum þá er það góður lambahryggur. Hér gefur að líta æðislega uppskrift að einum slíkum sem ætti að slá í gegn á hverju veisluborði.

Lúxus lambahryggur á páskaborðið

Uppskriftir | 9. apríl 2022

Ljósmynd/Íslenskt lambakjöt

Ef það er eitthvað sem við Íslendingar elskum þá er það góður lambahryggur. Hér gefur að líta æðislega uppskrift að einum slíkum sem ætti að slá í gegn á hverju veisluborði.

Ef það er eitthvað sem við Íslendingar elskum þá er það góður lambahryggur. Hér gefur að líta æðislega uppskrift að einum slíkum sem ætti að slá í gegn á hverju veisluborði.

Lúxus lambahryggur á páskaborðið

Lambahryggur

  • 1 lambahryggur
  • Salt og pipar
  • 2 msk. olía
  • 10 g timían, rifið af stilkunum
  • 10 g rósmarín, rifið af stilkunum og saxað
  • 30 g möndlur

Kartöflusmælki

  • 600 g kartöflusmælki
  • 100 g smjör
  • 30 g graslaukur fínt skorinn
  • Salt og pipar

Soðsósa með kardimommum og kanil

  • 600 ml lambasoð eða nautasoð
  • 100 g smjör
  • 1 stjörnu anís
  • 2 heilar kardimommur
  • 1 msk. púðursykur
  • 1 kanilstöng
  • 3 msk. eplaedik

Leiðbeiningar

Lambahryggur

  1. Hitið ofninn í 120°C, nuddið olíu á hrygginn og saltið. Timían og rósmarín dreift vel yfir hrygginn.
  2. Ofnsteikið í 2 tíma eða þar til kjarnhitinn er kominn í um 58°C. Mælum með að nota kjarnhitamæli!
  3. Takið hrygginn út og hækkið hitann í 220°C. Hryggurinn settur aftur inn í 10 mín eða þar til skorpan er orðinn fagur brúnuð.
  4. Leyft að hvíla í minnst 10 mín áður en hann er skorinn.
  5. Skreytt með möndlum, timian og rósmarín.

Kartöflusmælki

  1. Sjóðið kartöflur í 20 mín eða þar til þær eru mjúkar í gegn.
  2. Á meðan er smjörið brætt í potti.
  3. Sigtið vatnið frá og setjið í skál ásamt smjöri og graslauk.
  4. Smakkið til með salt og pipar eftir smekk.

Soðsósa með kardimommum og kanil

  1. Blandið öllu nema smjöri saman í pott.
  2. Sjóðið niður um helming og sigtið, látið suðuna koma upp aftur og takið af hellunni og pískið smjörinu saman við í litlum bitum.
  3. Passið að sósan sjóði ekki aftur eftir að smjörinu er bætt út í, því þá skilur hún sig.
  4. Hér má líka nota nauta og kjúklingasoð.
mbl.is