Berglind Hreiðars á Gotteri.is býður hér upp á lambalundir af bestu gerð sem hún ber fram með sveppasósu og algjörlega geggjaðri sætkartöflumús.
Berglind Hreiðars á Gotteri.is býður hér upp á lambalundir af bestu gerð sem hún ber fram með sveppasósu og algjörlega geggjaðri sætkartöflumús.
Lambalundir með sætkartöflumús og sveppasósu
Lambalundir uppskrift
- Um 1 kg lambalundir
- 3 msk. Bezt á lambið krydd
- 3 msk. ólífuolía
Aðferð:
- Veltið lundunum upp úr olíu og kryddi, plastið og leyfið að marinerast að minnsta kosti í klukkustund (yfir nótt væri líka í lagi).
- Grillið síðan á vel heitu grilli í 5-8 mínútur, fer eftir þykkt lundanna.
- Hvílið síðan í að minnsta kosti 10 mínútur áður en kjötið er skorið.
Sveppasósa uppskrift
- 60 g smjör
- 300 g sveppir
- 2 hvítlauksrif
- 3 msk. hvítvín
- 1 msk. sítrónusafi
- 400 ml vatn
- 400 ml rjómi
- 30 g parmesan
- 1 msk. timian
- Salt og pipar
- 2 x Toro sveppasósubréf
Aðferð:
- Steikið sveppina upp úr smjöri þar til þeir mýkjast. Saltið og piprið eftir smekk og rífið hvítlaukinn saman við í lokin og steikið aðeins áfram.
- Hellið hvítvíninu yfir sveppina og leyfið því að sjóða niður (gufa upp) og bætið þá restinni af hráefnunum í pottinn og pískið sósubréfin saman við.
- Leyfið að malla og smakkið til með salti og pipar.
Sætkartöflumús uppskrift
- Um 1100 g sætar kartöflur
- 60 g smjör
- 3 msk. hlynsýróp
- 1 tsk. salt
- ½ tsk. pipar
- ½ tsk. cheyenne pipar
- 60 g saxaðar döðlur
- 100 g saxaðar pekanhnetur
- 1 krukka fetaostur (bara osturinn)
Aðferð:
- Sjóðið kartöflurnar. Mér finnst best að flysja þær fyrst og skera í jafna bita, þá eru þær fljótari að sjóða.
- Setjið síðan kartöflubitana ásamt smjöri, sýrópi og kryddi í hrærivélarskálina og blandið saman.
- Færið næst yfir í eldfast mót og dreifið döðlum, pekanhnetum og fetaosti yfir og bakið við 190°C í um 10-15 mínútur eða þar til osturinn bráðnar og hneturnar fara að gyllast.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir