Hér erum við með köku úr smiðju Maríu Gomez á Paz.is sem ætti að gleðja ansi marga enda er hún með því geggjaðasta sem sést hefur lengi. Við erum að tala um Rice Krispies þristabotn með þristasósu og bananarjóma. Algjörlega sturluð samsetning sem þið verðið að prófa.

Rice crispies þristabotn
Þristasósa
Bananarjómi
Ofan á
Aðferð
Rice crispies þristabotn
Setjið smjör, síróp og smátt skorna þrista saman í pott og bræðið saman við vægan hita
Leyfið þessu ögn að sjóða saman í smá stund svo þetta verði eins og klístruð súkkulaðikaramella
Slökkvið þá undir og bætið 225 gr Rice Crispies út í og hrærið varlega saman þar til allt Rice crispíið er þakið þristasósunni
Setjið næst í 26 cm smelluform og látið ná alveg upp að brúninni við kantana en hafið dæld fyrir miðju svo þetta verði eins og Rice Crispies skál (gott er að klippa út smjörpappír í hring að sömu stærð og botninn á forminu og setja í botninn á því)
Setjið í frystir í eins og 1 klst og gerið þristasósuna á meðan
Þristasósa
Setjið 250 gr af smátt skornum þristum í pott og 1 dl rjóma
Bræðið vel saman við vægan hita og hrærið reglulega í þar til allt er vel bráðið saman
Leyfið sósunni að standa í smá stund upp á borði í skál svo hún kólni ögn og gerið bananarjómann á meðan
Bananarjómi
Setjið rjóma, flórsykur, gulan matarlit og lyftiduft saman í skál og stífþeytið rjómann
Stappið banana og setjið nokkra sítrónudropa út á eins og 3- 4 dropa til að hann verði ekki brúnn með tímanum (má samt sleppa)
Hrærið svo varlega saman stappaða banananum við þeytta rjómann
Samsetning
Þessa köku er hægt að bera fram jafnt sem rjómatertu eða ístertu. Mér persónulega finnst hún betri sem ísterta. Leyfið henni að kólna í frystir í eins og 30 mín ef bera á hana fram sem rjómatertu en minnst 1 klst eða lengur ef bera á hana fram sem ístertu.