Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, hefur beðið þingmenn breska þingsins afsökunar fyrir að hafa brotið eigin lög um samkomutakmarkanir.

Johnson baðst afsökunar er þing kom saman í dag en hann ítrekaði að hann teldi sig ekki hafa gert neitt rangt með því að vera viðstaddur veislu á afmælinu hans í júní 2020.
„Þetta voru mín mistök og ég biðst afsökunar á því fyrirvaralaust. Breska þjóðin hefur rétt á að búast við meiru af forsætisráðherranum þeirra,“ sagði Johnson.
Andstæðingar Johnsons á þinginu hafa sakað hann um lygar, þar sem hann hefur áður haldið því fram að engin lög hafi verið brotin.
Á fimmtudaginn verður haldin sérstök umræða um hvort Johnson hafi afvegaleitt þingið.
Johnson sjálfur verður hins vegar á Indlandi þá.
Hann var þó spurður að því í dag hvort hann hafi logið að þinginu og svaraði Johnson neitandi.
Mark Harper, þingmaður Íhaldsflokksins, greindi frá því á Twitter í dag að hann hafi sent vantrauststillögu á hendur forsætisráðherranum til hinnar svonefndu 1922-nefndar, sem samanstendur af almennum þingmönnum Íhaldsflokksins.
54 slík vantraustsbréf þurfa að berast til nefndarinnar til þess að knýja fram leiðtogakjör í flokknum, en ekki er sagt frá því hversu mörg bréf hafi borist til nefndarinnar fyrr en þeim fjölda er náð.