Boðinn friður gegn því að draga í land

Samherji | 4. maí 2022

Boðinn friður frá fjölmiðlamönnum gegn því að draga í land

Páll Steingrímsson, skipstjóri hjá Samherja, sem ratað hefur ítrekað í fréttir eftir að gögn úr stolnum farsíma hans láku í fjölmiðla, segir að honum hafi verið boðinn friður frá ákveðnum hópi fjölmiðlamanna ef hann drægi kæruna á símastuldinum til baka. 

Páll Steingrímsson, skipstjóri hjá Samherja.
Páll Steingrímsson, skipstjóri hjá Samherja. Samsett mynd

Páll Steingrímsson, skipstjóri hjá Samherja, sem ratað hefur ítrekað í fréttir eftir að gögn úr stolnum farsíma hans láku í fjölmiðla, segir að honum hafi verið boðinn friður frá ákveðnum hópi fjölmiðlamanna ef hann drægi kæruna á símastuldinum til baka. 

Páll Steingrímsson, skipstjóri hjá Samherja, sem ratað hefur ítrekað í fréttir eftir að gögn úr stolnum farsíma hans láku í fjölmiðla, segir að honum hafi verið boðinn friður frá ákveðnum hópi fjölmiðlamanna ef hann drægi kæruna á símastuldinum til baka. 

Frá þessu greinir Páll á facebook-síðu sinni þar sem hann fer yfir símastuldsmálið og segist oft líða eins og hann hafi óvart lent í lélegri bíómynd enda atburðarrásin lyginni líkust.

mbl.is greindi frá því fyrir ári síðan að gögnin sem birt voru á Stundinni og Kjarnanum um svokallaða skrímsladeild Samherja hafi verið úr síma Páls sem stolið hafi verið af honum á meðan hann lá á milli heims og helju á sjúkrahúsi. 

Veikur nákominn aðili gripið til örþrifaráðs

„Fyrir ári síðan greip aðili nákominn mér, þjakaður af veikindum, til örþrifaráðs til að þóknast öðrum. Ég endaði á gjörgæslu og í öndunarvél og ef ekki væri fyrir stærð mína og hversu líkamlega hraustur ég er og fyrir framúrskarandi heilbrigðisstarfsfólk væri ég ekki hér,“ segir í færslu Páls um aðdraganda málsins.

mbl.is