„Hann var reiður við mig fyrir að taka við hlutverkinu á móti James Franco,“ sagði Heard þegar hún bar vitni í Fairfax í Virginíuríki í gær. Depp höfðaði meiðyrðamál gegn fyrrverandi eiginkonu sinni vegna greinar sem hún skrifaði í Washington Post árið 2018. Þar sagðist hún vera þolandi heimilisofbeldis en nafngreindi aldrei Depp. Hann neitar öllum ásökunum og hefur farið fram á 50 milljónir bandaríkjadala í skaðabætur.
Þetta var annar dagurinn sem Heard bar vitni í dómssalnum.
„Hann hataði, hataði james Franco, og byrjaði strax að saka mig um að það væri eitthvað meira á milli okkar eftir að við lékum í Pineapple Express saman,“ sagði Depp.
Hún segir atvikið hafa átt sér stað í flugvél í maí árið 2014. „Hann kallaði mig hóru,“ sagði Heard. Hún sagði Depp hafa drukkið áfengi í fluginu. Á einum tímapunkti sagði hún hann hafa slegið hana í framan og sparkað í bak hennar þegar hún færði sig yfir í annað flugsæti.
„Enginn sagði neitt, enginn gerði neitt. Þú hefðir getað heyrt saumnál detta í fluginu,“ sagði Heard en með í fluginu var öryggislið þeirra og aðstoðarmenn hans.
Heard og Depp gengu í hjónaband í febrúar árið 2015. Hún sótti um skilnað við hann í maí 2016 og voru þau lögskilin í janúar árið 2017.