Bjarni Sæmundsson vaktar ástand sjávar

Hafrannsóknastofnun | 20. maí 2022

Bjarni Sæmundsson vaktar ástand sjávar

Rannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson lagði frá bryggju á mánudag og hélt í árlegan vorleiðangur Hafrannsóknastofnunar og er hann  liður í langtímavöktun á ástandi sjávar, næringarefnum, gróðri og átu í hafinu umhverfis Ísland.

Bjarni Sæmundsson vaktar ástand sjávar

Hafrannsóknastofnun | 20. maí 2022

Fjöldi sýna eru tekin og greind á vorleiðangri.
Fjöldi sýna eru tekin og greind á vorleiðangri. Ljósmynd/HAfrannsóknastofnun/Svanhildur Egilsdóttir

Rannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson lagði frá bryggju á mánudag og hélt í árlegan vorleiðangur Hafrannsóknastofnunar og er hann  liður í langtímavöktun á ástandi sjávar, næringarefnum, gróðri og átu í hafinu umhverfis Ísland.

Rannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson lagði frá bryggju á mánudag og hélt í árlegan vorleiðangur Hafrannsóknastofnunar og er hann  liður í langtímavöktun á ástandi sjávar, næringarefnum, gróðri og átu í hafinu umhverfis Ísland.

Í leiðangrinum er ástand kannað á föstum sniðum út frá landinu, en auk þess eru gerðar mælingar með síritandi mælitækjum á siglingaleið skipsins. Þá er magn og útbreiðsla ljósátu mæld með bergmálstækni og ljósátusýni skoðuð.

Fram kemur á vef Hafrannsóknastofnunar að ársferðisrannsóknir á þessu sviði hafa farið fram í kringum maí og júní í um 60 ár.

Fjöldi sýna

Sýnum verður einnig safnað fyrir Geislavarnir ríkisins vegna vöktunar á magni geislavirkra efna í sjó. Tekin verða upp hlustunardufl djúpt út af Langanesi og Krossanesi vegna rannsóknar á atferli andanefja og annarra hvala en það verkefni er á vegum vísindamanna við Háskóla Íslands.

Jafnframt eru tekin sýni á völdum stöðum til greininga á erfðarefni svifþörunga í vatnsbolnum og setkjarnar sóttir frá botninum og er verkefnið hluti rannsóknasamstarfs Kaupmannahafnarháskóla og íslenska ríkisins sem efnt var til, til heiðurs Margréti Þórhildi drottningu Dana og Vigdísi Finnbogadóttur forseta.

Hitt rannsóknaskip Hafrannsóknastofnunar, Árni Friðriksson, er staddur djúpt austur af landinu, en skipið er að safna upplýsingar um magn og útbreiðslu norsk-íslenskrar síldar og annarra uppsjávartegunda.

mbl.is