Þurfa að hylja andlitið í sjónvarpsútsendingum

Talíbanar í Afganistan | 22. maí 2022

Fréttakonur á sjónvarpsstöðvum í Afganistan fluttu í dag fréttir með hulið andlitið í kjölfar tilskipunar talíbana. Á laugardag höfðu sumar þeirra mótmælt tilskipuninni með því að halda andlitum sínum sýnilegum.

Fréttakonur á sjónvarpsstöðvum í Afganistan fluttu fréttir með hulið andlitið.
Fréttakonur á sjónvarpsstöðvum í Afganistan fluttu fréttir með hulið andlitið. AFP

Fréttakonur á sjónvarpsstöðvum í Afganistan fluttu í dag fréttir með hulið andlitið í kjölfar tilskipunar talíbana. Á laugardag höfðu sumar þeirra mótmælt tilskipuninni með því að halda andlitum sínum sýnilegum.

Fréttakonur á sjónvarpsstöðvum í Afganistan fluttu í dag fréttir með hulið andlitið í kjölfar tilskipunar talíbana. Á laugardag höfðu sumar þeirra mótmælt tilskipuninni með því að halda andlitum sínum sýnilegum.

BBC greinir frá þessu en eftir að talíbanar komust til valda á síðasta ári hafa þeir í auknum mæli sett hömlur á líf kvenna undanfarnar vikur.

Fréttakona sjónvarpsstöðvarinnar TOLOnews, Farida Sial, segir það mjög erfitt fyrir fréttakonur að hylja andlit sitt í tvær til þrjár klukkustundir og tala þannig. Vill hún að alþjóðasamfélagið þrýsti á talíbana að afnema tilskipunina. „Þeir vilja eyða konum úr félags- og stjórnmálalífi,“ segir hún.

mbl.is