Mál borgarfulltrúans Magnúsar Davíðs Norðdahl, sem bauð sig fram fyrir Pírata til Alþingis í síðustu þingkosningum, hefur hlotið forgang hjá Mannréttindadómstóli Evrópu (MDE).

Málið snýr að meintum ágalla á framkvæmd kosninganna og hefur það nú komist í gegnum fyrstu síu dómstólsins, að sögn Magnúsar sem segir um „ákaflega mikilvægan áfanga“ að ræða.
„Uppspretta valdsins í okkar samfélagi er í þingkosningum. Löggjafarvaldið velur síðan hverjir fara með framkvæmdavald sem síðan skipar þá sem fara með dómsvald. Heilindi kerfisins í heild eru undir í þessu dómsmáli,“ skrifar Magnús í færslu á Facebook.
Hann krafðist á sínum tíma ógildingar kosninganna í Norðvesturkjördæmi með vísan í framkvæmd talningar. Taldi hann annmarkana til þess fallna að draga úr trúverðugleika talningarinnar en eins og greint var frá í fréttum þurfti að endurtelja atkvæði í Norðvesturkjördæmi í kjölfar kosninganna.