Alþingi samþykkti í gær samhljóða frumvarp sem kveður á um nauðsynlegar heimildir í lögum til að greiða leið fyrirhugaðrar úttektar Reykjavíkurborgar á starfsemi Vöggustofunnar að Hlíðarenda og Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins. Mun borgin skipa nefnd til að kanna starfsemina.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að hér sé um að ræða mikilvæga söguskoðun sem hægt verður að draga lærdóm af fyrir framtíðina og tryggja réttlæti en oft voru það börn foreldra sem voru jaðarsettir vegna fátæktar, aldurs, veikinda eða félagslegrar stöðu sem voru vistuð á þessum heimilum. Þetta kom fram í færslu hennar á Facebook.
Fyrir tæpu ári síðan samþykkti Dagur B. Eggertsson borgarstjóri að borgin myndi rannsaka vistheimilin að loknum fundi með fulltrúum Réttlætis, sem er hópur manna sem hefur vakið athygli á starfsaðferðunum sem var beitt á vöggustofunum. Í greinargerð mannanna var starfsemi vöggustofanna meðal annars lýst með eftirfarandi hætti:
„Á Hlíðarenda og síðar Vöggustofu Thorvaldsenfélagsins var skipulag starfseminnar vélrænt og örvun á vitsmuna- og tilfinningaþroska barnanna var ekki á dagskrá. Á honum voru þrír stórir gluggar og í gegnum þá var hægt að fylgjast með börnunum í berstrípuðum, sótthreinsuðum og upplýstum herbergjum. Þar voru þau látin liggja í rimlarúmum án örvunar því starfsfólki var forboðið að snerta eða tala við þau að nauðsynjalausu.“
Skipa átti úttektarnefnd fyrir rannsóknina í október á síðasta ári en sú framkvæmd tafðist þó og mátti ástæðuna rekja til lagalegra álitamála. Skorti borginni nauðsynlegar rannsóknarheimildir til að ráðast í úttektina, varðaði málið m.a. lög um persónuvernd.
Fulltrúar borgarinnar gengu því á fund með fulltrúum forsætisráðuneytisins sem féllust á að aðstoða við rannsóknina með því að beita sér fyrir nauðsynlegum lagaheimildum. Í gær var frumvarp ráðuneytisins svo samþykkt á Alþingi.