Júlíspá Siggu Kling í öllu sínu veldi

Stjörnuspá Siggu Kling | 1. júlí 2022

Júlíspá Siggu Kling í öllu sínu veldi

Sigga Kling er mætt með júlíspá sína. Þar kemur margt forvitnilegt í ljós og margt á eftir að breytast. 

Júlíspá Siggu Kling í öllu sínu veldi

Stjörnuspá Siggu Kling | 1. júlí 2022

Sigga Kling spáir fyrir lesendum mbl.is.
Sigga Kling spáir fyrir lesendum mbl.is.

Sigga Kling er mætt með júlíspá sína. Þar kemur margt forvitnilegt í ljós og margt á eftir að breytast. 

Sigga Kling er mætt með júlíspá sína. Þar kemur margt forvitnilegt í ljós og margt á eftir að breytast. 

Elsku Fiskurinn minn,

það hefur verið mikill rússíbani í kringum þig hjartað mitt og jafnmikið fjör og hræðsla eins og um alvöru rússíbana væri að ræða. Tími gleði og hamingju er þó miklu meiri heldur en tími erfiðleika og vonleysis. Það er reyndar hægt að segja að lífið sé rússíbani, sérstaklega þegar maður tekur þátt í því sem er að gerast.

Mikið hugrekki er tengt þér og stundum, að sjálfsögðu, sérðu eftir því að hafa verið hugrakkur. En þegar þú hefur gengið aðeins lengra inn í tímann sem þér er gefinn, þá skilurðu alveg inn að hjartarótum að allt sem gerðist var hárrétt.

Farðu neðst á forsíðu mbl.is til þess að lesa spánna í heild sinni. 

Elsku Steingeitin mín,

það hefur verið allavega spenna í kringum þig og orð sem tengist orðinu spenna er kvíði. Það er svo magnað hvað manni getur kviðið fyrir einhverju sem á eftir að gerast, en alltaf hefur þetta bjargast hjá þér einhvernveginn. Þú vilt vera slök og kærulaus, en þessi tími sem þú ert að fara inn í gefur þér miklu betri útkomu en augað sér. Fullt tungl er þann þrettánda júlí og það er þitt, tungl Steingeitarinnar. Innifalið í þessari orku er að samningar munu takast og krafturinn eflist í kringum húsnæði eða vinnu. Ef að breytingar eru í stöðunni verða þær þér til lukku, þó þú sjáir það ekki núna.

Þú verður að vita það að þér er gefið leyfi til þess að hætta því sem þér finnst ömurlegt eða leiðinlegt og gerir ekkert fyrir þig. Þetta má tengja við vinnu, skóla eða við ástina. Ef þér finnst að orkan hafi verið erfið á þessum tilfinningasviðum, þá skaltu endurskoða hlutina, taka ákvörðun og stíga fyrsta skrefið til þess að hluturinn breytist.

Farðu neðst á forsíðu mbl.is til þess að lesa spánna í heild sinni. 

Elsku Vatnsberinn minn,

þú ert svo tilfinningaríkur og með svo marga kosti að það er eins og þú sért tengdur við rafmagn. Þú ert búinn að ofhugsa allt of mikið. Hugur þinn hefur verið á 360 kílómetra hraða og það er há sekt við því í tilfinningaríki þínu ef þú ferð ekki að róa hugann og nota allt sem þú getur til þess. Það hefur verið sá tími núna að þú hafir gefið meira en þú átt og þar af leiðandi tæmt kraftinn þinn. En Karma sér um sína, svo um leið og þú sleppir tökunum færðu endurgoldið þá góðsemi sem þú hefur sýnt öðrum.

Sumarið verður einfaldara og friðsamara en þú bjóst við og það er nákvæmlega það sem þú þarft. Þú ferð að skoða óvenjulega að skipta um liti, hvort sem það er í klæðnaði eða þar sem þú býrð. Það er margt sem þú ert kominn með hundleið á og taktu eftir því ef einhver persóna, hlutir í kringum eða eitthvað af fötunum þínum fer í taugarnar á þér aftur og aftur. Því þá eru það bara hrein skilaboð: Út með þetta. 

Farðu neðst á forsíðu mbl.is til þess að lesa spánna í heild sinni. 

Elsku Hrúturinn minn,

þú hefur lifað einstöku lífi og lent í sögulegum ævintýrum sem hafa breytt lífsstefnu þinni. Vinum þínum þykir stundum ótrúlegt hvað þú getur verið heppinn og það er smá öfundssýki á reiki í kringum þig. Það hlýtur að þýða að þú sért að gera eitthvað rétt og þú þarft enga hjálp til að flétta það saman sem þú vilt og ef þú stólar á aðra þá verðurðu fyrir svo miklum vonbrigðum.

Harkaðu það bara af þér þó að það komi tímabil sem bíta í þig, því að þegar þú æfir þig í þessu þá muntu ekki finna fyrir neinum árásum vegna þess að það mun ekki skipta þig máli hvað öðrum finnst. 

Farðu neðst á forsíðu mbl.is til þess að lesa spánna í heild sinni. 

Elsku Nautið mitt, þú ert svo glitrandi og góð manneskja. Þú hefur ástríður fyrir því að senda öðrum hlýju, enda er ástarplánetan Venus þín. Einn dagur á Venus er eins og um það bil 250 dagar á Jörðinni. Hún snýst mjög hægt og þetta gerir það af verkum að þú þarft að vernda þig og að umlykja þig þeirri fegurð sem þú hefur yfir að bera. Þú ert traustur fram úr hófi og ætlar þér að sjálfsögðu bara einn maka til endiloka. Þú átt svo erfitt með að slíta því sem þú hefur byggt upp vegna þess að alveg eins og að Venus snýst afturábak svo tengdur ert þú fortíðinni þinni. Þú ert sá sem hugsar mest um að fjölskylduna og vinina skorti ekkert og líði sem best.

Á þessum sérkennilegu tímum sem þú lifir á virðist allt vera á ógnarhraða, og ég er einhvern veginn sannfærð um að tíminn hreyfist hraðar en hann gerði. En ekki vera svona mikið í því að horfa til fortíðar eða að líta tilbaka, því það stöðvar framþróun þína. 

Farðu neðst á forsíðu mbl.is til þess að lesa spánna í heild sinni. 

Elsku hjartans Tvíburinn minn,

þú þarft að hafa ljós og mikið rými, helst töluverða lofthæð því þá líður þér best. Það eru miklar breytingar búnar að vera hjá þér og miklar breytingar eru framundan. Það sem gerist í kringum þig gerist á ljóshraða og ef einhver elskar action þá ert það þú. Þú átt eftir að ferðast svo víða og að hitta svo andríkt og sterkt fólk. Líka svo ólíkar tegundir af manneskjum sem munu næra þig mikið, svona svipað og þegar aðrir taka inn vítamínin sín.

Þú átt erfitt með að láta aðra stjórna þér og þegar lítið er að gera þá koðnarðu niður og gætir orðið líkamlega eða andlega veikur. Þó að það skiptist á með skini og skúrum í lífi þínu þá ertu bara eins og loftslagið á Íslandi, maður veit aldrei hvað gerist næst. Mundu að nýta þér það vel og að þú getur sagt JÁ, svo segðu núna já við ýmsum verkefnum eða viðburðum sem þú myndir annars ekki framkvæma eða segja já við.

Farðu neðst á forsíðu mbl.is til þess að lesa spánna í heild sinni. 

Elsku Krabbinn minn,

þú ert yfirleitt svo félagslyndur, hress og geislandi. En þú átt tímabil þar sem þú verður þögull og næstum því fráhrindandi og maður skilur hvorki upp né niður í því sem þú ert að hugsa. Þú ert hrókur alls fagnaðar og ert auðfúsugestur á öllum stöðum, en það er ekki þar með sagt að þú sért alltaf í stuði. Það mætti kalla þetta að þú værir félagslyndur einfari.  Þú hefur miklar væntingar í sambandi við ástina og fjölskylduna, en það tengir þig töluverð sorg samt í þeim efnum. Þá vil ég segja þér það að með hverri sorg kemur sigur. Þú þarft að passa þig á því að þegar þú lokar þig að mestu leyti af, þá verðurðu svo geðstirður og minnstu hlutir fara í taugarnar á þér. Þá gerist það líka að þú ferð í taugarnar á sjálfum þér, því að þú ert eina persónan sem þú þarft að hanga með.

Að mörgu leyti myndi henta þér best að vera í fjarsambandi, sérstaklega þegar árin færast yfir, en þá kemur það líka fyrir að þú getir ekki treyst nægilega, því þú hefur verið svikinn áður. Það kemur núna sá tími að þú verðir heppinn í sambandi við peninga, það verður næstum því eins og þeir falli af himnum ofan. 

Farðu neðst á forsíðu mbl.is til þess að lesa spánna í heild sinni. 

Elsku Ljónið mitt,

þú ert að fara inn í tíma sem þú hefðir vart trúað að myndi koma til þín. Júlí, ágúst og september eru leiðandi mánuðir fyrir framtíð þína. Þú átt eftir að nálgast tilveruna með samúð, manngæsku og ást. Þetta er líka vegna þess að það er eina leiðin sem er fær fyrir þig, því annars lendirðu í stormi og stórsjó.

Þú ert í raun og veru bara stór kettlingur sem heillar alla ef þú heldur rétt á loppunum.  Þú þarft að sannfæra þá sem pirra þig að þú sért að fara áfram í lífinu með góðar áætlanir. Það er líka mikilvægt að þú sýnir auðmýkt þeim sem þér finnst að standi í vegi þínum. Það elska allir kettlinga, svo hagaðu þér stundum eins og slíkur. 

Farðu neðst á forsíðu mbl.is til þess að lesa spánna í heild sinni. 

Elsku Meyjan mín,

tíminn á eftir að fljúga hratt næsta mánuð og þú átt eftir að grípa hvert andartak til þess að hressa þig við. Þú verður í sterkri tengingu við Alheiminn og átt eftir að fá svo sterk hugboð. Og það sem flýgur í gegnum huga þinn að ef  það er til dæmis persóna sem þú hefur ekki séð lengi þá hittirðu hana. Það virðist vera alveg sama hvaða hugboð þú færð að allt mun gerast svo snögglega í kringum þig. Þú hefur varla sagt setninguna áður en það sem þú varst að tala um birtist þér. Þú ert í þeirri tengingu að ótrúlegustu væntingar og vonir verða að veruleika.

Næstu fjórir mánuðir í lífi þínu verða svo aflmiklir, en þegar þér finnst að eitthvað sé að snúast gegn þér, vertu þá viss um að Veröldin er að stýra þér á aðrar brautir sem eru betri.

Farðu neðst á forsíðu mbl.is til þess að lesa spánna í heild sinni. 

Elsku Vogin mín,

það er sérstök verndarhendi yfir þér. Alveg sama hvaða aðstæður verða, þá bjargast allt á síðustu stundu. Þetta getur að sjálfsögðu valdið þér stressi, en þegar að stress heilsar upp á mann hugsar maður bara hraðar og viðbrögðin verða sneggri. Alveg eins og ef að ísbjörn væri að elta þig þá birtist ofurkraftur í þínum líkama og huga. En þetta gerist yfirleitt bara þegar stressið heimsækir okkur, svo þakkaðu fyrir það elskan mín. Næstu fimm mánuðir hjá þér breyta lífi þínu þannig að þú verður miklu sterkari vegna þess að þú ert að fara í gegnum tímabil sem sýnir þér hversu ógurlega sterk þú ert. Það er samt hætta á því að þú getir verið of fljótfær og þá sérstaklega með orðin þín og þá við þá sem standa þér næst. Svo bíttu bara í tunguna á þér og teldu upp á tíu. Ástæðan fyrir þessu er að það er svo há spenna í huganum þínum, en hún á líka eftir að skapa það að þú framkvæmir miklu meira en þú hefur verið að gera síðustu misserin. Þetta tímabil er skrifað í skýin og sýnir þér að þú ert ofurhetja.

Farðu neðst á forsíðu mbl.is til þess að lesa spánna í heild sinni. 

Elsku Sporðdrekinn minn,

þessi mánuður sem þú ert að fara inn í gefur þér það að þú átt eftir að sættast eða að leitast sátta við þá sem hafa verið í kringum þig. Hvort sem þeir eiga það skilið eður ei. Það er eins og reiðin gufi upp gagnvart þeim sem hafa sett stein í þinn veg. Líka ef þú hefur verið ósanngjarn, sem getur komið fyrir. Þú lætur of oft utanaðkomandi áhrif ná þér, en það er alveg skýrt að lífið er inni í hjarta þínu og allt annað er þér í raun óviðkomandi. Þú ræður og velur hvaða tilfinningar þú vilt hafa.

Það gæti svo vel verið að þú værir að hugsa um flutninga. Ígrundaðu samt vel hvar þú vilt í raun og veru vera og hvaða staður er í bestur fyrir andann þinn.

Farðu neðst á forsíðu mbl.is til þess að lesa spánna í heild sinni. 

Elsku Bogmaðurinn minn,

þú ert svo stórkostlegur en samt svo óvenjuleg týpa. Júpiter er þín pláneta sem færir þér svo mikla lukku og heppni svo það er engin ástæða til að hafa áhyggjur. Það hafa verið ýmsar hindranir hjá þér undanfarið og þær eru að segja þér að þú sért jafnvel ekki á þeim stað sem er bestur fyrir þig. Það er eins og þú þurfir bara að breyta bara örlitlu til þess að allt annað breytist sjálfkrafa. Svona eins og þegar þú togar í spotta kveikna öll ljós.

Það er margt að fara til fortíðar og það verða endalok á mörgu sem þú kannski bjóst ekki við, en það verður samt allt í lagi með allt. Þú finnur nefnilega lausnina á því sem þig vanhagar um og þó að þú dettir svolítið í það að vera dapur, þá er það líka eðlileg tilfinning.

Farðu neðst á forsíðu mbl.is til þess að lesa spánna í heild sinni. 

mbl.is