Einhver bið verður á uppsetningu viðvörunarkerfis fyrir Reynisfjöru, meðal annars vegna sumarfría, og verður líklega ekkert nýtt að frétta af verkefninu fyrr en í byrjun ágúst.

Sólveig Gísladóttir, samskiptastjóri Vegagerðarinnar, segir málið hafa verið í vinnslu og að fundur hafi verið haldinn í síðustu viku.
G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, sagðist fyrir rúmri viku síðan hafa fulla trú á því að kerfið yrði sett upp í sumar en gat ekki sagt til um hvort það yrði á næstu dögum eða vikum.
Ríkislögreglustjóri leiðir verkefnið en Vegagerðin sér um tækjabúnaðinn. Að sögn Sólveigar er viðvörunarkerfið að mestu leyti tilbúið til uppsetningar en ekki er búið að ákveða hvernig skilti sem því fylgir skal líta út.
Skarphéðinn Berg Steinarsson ferðamálastjóri greindi frá því í lok júní að verkefnið sé að fullu fjármagnað. Byggist það á tillögum Vegagerðarinnar sem voru tilbúnar fyrir rúmum tveimur árum.
Vinnuhópur á vegum Þórdísar Kolbrúnar R. Gylfadóttur þáverandi ferðamálaráðherra, vann tillögurnar en verkefnið rann út í sandinn eftir að ágreiningur skapaðist um útfærslu þess milli nokkurra landeigenda og stjórnvalda.
Rúmur mánuður er liðinn síðan banaslys varð í Reynisfjöru og í kjölfarið upphófst mikil umræða um aðgengi ferðamanna að þessum vinsæla áfangastað og hvernig hægt væri að koma í veg fyrir fleiri banaslys.