Að minnsta kosti 17 þingmenn Demókrataflokksins voru handteknir í mótmælum fyrir réttindum kvenna til þungunarrofs fyrir utan Hæstarétt Bandaríkjanna í Washington í dag. Á meðal þeirra handteknu eru þingkonurnar Alexandria Ocasio-Cortez og Ilhan Omar.

Fyrir tæpum mánuði snéri Hæstiréttur Bandaríkjanna við dómnum Roe gegn Wade sem hafði tryggt konum rétt til þungunarrofs í um 50 ár. Hinn nýi dómur hefur verið harðlega gagnrýndur.
Lögreglan greindi frá því á Twitter að mótmælendur hefðu truflað umferð og fengið þrjár viðvaranir áður en lögreglumenn handtóku þá. Alls voru 35 mótmælendur handteknir.
Þingkonan Veronica Escobar greindi frá því á Twitter að hún væri meðal þeirra handteknu.
Þingkonan Alexandria Ocasio-Cortez var einnig handtekin en myndbandi af handtöku hennar hefur verið deilt á Twitter.