Tónlistamaðurinn Justin Bieber mun hefja tónleikaferð sína, Justice World á ný eftir að hafa þurft að fresta henni vegna alvarlegra veikinda. Í júní greindi Bieber frá því að hann væri með Ramsay Hunt sjúkdóminn sem er sjaldgæfur taugasjúkdómur sem veldur útbrotum, eyrnaverkjum og lömun í andliti.

Fulltrúi Bieber staðfesti við Variety að hann ætli að halda tónleikaferðalagi sínu áfram í lok mánaðar. Hann mun byrja ferðalagið á Lucca, Ítalíu og mun halda þaðan áfram um Evrópu, Suður-Ameríku, Suður-Afríku, Miðausturlönd, Asíu, Ástralíu og Nýja Sjálandi.
Eftir að Biber greindist með sjúkdóminn fór hann ásamt eiginkonu sinni, Hailey Bieber í tveggja vikna frí til Bahamaeyja. Þaðan fóru hjónin í frí til Idaho með fjölskyldu og vinum. „Hailey hefur stutt Justin rétt eins og hann studdi hana með heilsufarsvandamál hennar,“ sagði heimildarmaður People og vísaði í heilablóðfall fyrirsætunnar fyrr á árinu.