Fjórir lögreglumenn hafa verið ákærðir vegna andláts Breonnu Taylor en hún var skotin til bana á heimili sínu í Louisville í Kentucky í Bandaríkjunum árið 2020.

Merrick Garland, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, segir í yfirlýsingu að lögreglumennirnir séu ákærðir fyrir brot gegn borgaralegum réttindum, ólöglegt samsæri, valdbeitingu og eyðileggingu.
Taylor, sem var 26 ára gömul svört kona, var skotin átta sinnum er hún lá upp í rúmi eftir að lögreglan réðst inn á heimili hennar og kærasta hennar.
Um var að ræða svokallaða „no-knock“-húsleit vegna ábendingar sem lögreglu barst um að hugsanlega færi starfsemi tengd fíkniefnum fram á heimilinu. Kærasti Taylor vaknaði við lætin og kallaði og spurði hver væri þar á ferð en fékk ekkert svar og greip því byssu sína og hleypti af einu skoti.
Lögreglumennirnir brugðust við með því að hleypa af fjölmörgum skotum. Seinna kom í ljós að lögreglumennirnir höfðu farið húsavillt.
Atvikið vakti mikla reiði í Bandaríkjunum og víðar um heim, og brutust út fjölmenn mótmæli í kjölfarið.