Einfalt en ótrúlega ljúffengt grillað ribeye með krydduðu frönskum kartöflum og heimagerðu hvítlaukssmjöri. Skotheld uppskrift þegar gera á vel við sig og sína með góðri steik. Það er Snorri Guðmundsson, ljósmyndari og matarbloggari, sem á heiðurinn að þessari uppskrift.
Einfalt en ótrúlega ljúffengt grillað ribeye með krydduðu frönskum kartöflum og heimagerðu hvítlaukssmjöri
- 2 x 250 g Ribeye steikur
- 400 g franskar kartöflur (Snorri notaði Aviko Super Crunch)
- ½ tsk. hvítlauksduft
- ½ tsk. paprikuduft
- 250 g brokkolini (fæst í Costco)
- 60 ml smjör (við stofuhita)
- 2 lítil eða 1 stórt hvítlauksrif
- 2 msk. söxuð steinselja
- 1 stk. sítróna
- Salt eftir smekk
Aðferð:
- Pressið hvítlauksrif og rífið um 2 tsk. af sítrónuberki (varist að taka hvíta undirlagið með). Blandið saman hvítlauk, smjöri, saxaðri steinselju og sítrónuberki. Smakkið til með salti.
- Takið kjötið úr kæli a.m.k. 1 klst. fyrir eldun, en það mun hjálpa til við jafnari og betri eldun.
- Nuddið kjötið með olíu og saltið rausnarlega. Piprið eftir smekk.
- Setjið kartöflurnar í stóra skál, veltið upp úr olíu og salti og eldið þær svo eftir leiðbeiningum á umbúðum.
- Færið bakaðar kartöflurnar aftur í skálina og veltið upp úr hvítlauks- og paprikudufti. Smakkið til með salti ef þarf.
- Setjið vatn í pott ásamt svolitlu salti og náið upp suðu. Lækkið hitann svo það rétt kraumi í vatninu og sjóðið brokkolini í 3 mín.
- Hitið grill að 200°C og grillið steikurnar í 4-5 mín. á hvorri hlið upp í 54°C kjarnhita fyrir medium-rare eldun. Best er að nota kjöthitamæli til að tryggja nákvæma eldun. Leyfið kjötinu að hvíla í nokkrar mín. áður en skorið er í það.