Aflamestu krókabátarnir komnir í slipp

Smábátaveiðar | 18. ágúst 2022

Aflamestu krókabátarnir komnir í slipp

Krókaaflamarksbátarnir Hafrafell SU-65 og Sandfell SU-75 fóru báðir í slipp á mánudag. Sandfell í Njarðvík og Hafrafell í Hafnarfirði, en í báðum tilfellum fara bátarnir í reglubundið árlegt viðhald.

Aflamestu krókabátarnir komnir í slipp

Smábátaveiðar | 18. ágúst 2022

Sandfell SU hefur borið mesta þorsk til hafnar meðal krókabáta …
Sandfell SU hefur borið mesta þorsk til hafnar meðal krókabáta á fiskveiðiárinu. Báturinn er nú kominn í slipp og mun ekki veiða meira á þessu fiskveiðiári. Ljósmynd/Loðnuvinnslan hf.

Krókaaflamarksbátarnir Hafrafell SU-65 og Sandfell SU-75 fóru báðir í slipp á mánudag. Sandfell í Njarðvík og Hafrafell í Hafnarfirði, en í báðum tilfellum fara bátarnir í reglubundið árlegt viðhald.

Krókaaflamarksbátarnir Hafrafell SU-65 og Sandfell SU-75 fóru báðir í slipp á mánudag. Sandfell í Njarðvík og Hafrafell í Hafnarfirði, en í báðum tilfellum fara bátarnir í reglubundið árlegt viðhald.

Fram kemur á vef Loðnuvinnslunnar, sem gerir bátanna út, að þeir munu vera í slipp í um tvær vikur og því ljóst að þeir fiska ekki meira á yfirstandandi fiskveiðiári sem lýkur 31. ágúst næstkomandi.

Sandfell er sá krókaaflamarksbátur sem borið hefur mestan þorsk að landi það sem af er fiskveiðiári, eða rétt tæp 1.952 tonn, samkvæmt skráningu Fiskistofu. Hafrafell hefur landað 1.576 tonnum af þorski og er það þriðju mesti afli krókaaflamarksbáta.

Hafrafellið er komið í slipp í Hafnarfirði og mun vera …
Hafrafellið er komið í slipp í Hafnarfirði og mun vera þar næstu tvær vikur. Ljósmynd/Loðnuvinnslan
mbl.is