Leyfilegur heildarafli í samræmi við ráðgjöf Hafró

Strandveiðar | 31. ágúst 2022

Leyfilegur heildarafli í samræmi við ráðgjöf Hafró

Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, hefur ákveðið að leyfilegur heildarafli fiskveiðiársins 2022/2023, sem hefst á morgun, verði í takti við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar og hefur undirritað reglugerð þess efnis.

Leyfilegur heildarafli í samræmi við ráðgjöf Hafró

Strandveiðar | 31. ágúst 2022

Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, undirritaði á dögunum reglugerðir sem gera ráð …
Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, undirritaði á dögunum reglugerðir sem gera ráð fyrir hámarksafla á fiskveiðiárinu 2022/2023 sem er í takti við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, hefur ákveðið að leyfilegur heildarafli fiskveiðiársins 2022/2023, sem hefst á morgun, verði í takti við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar og hefur undirritað reglugerð þess efnis.

Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, hefur ákveðið að leyfilegur heildarafli fiskveiðiársins 2022/2023, sem hefst á morgun, verði í takti við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar og hefur undirritað reglugerð þess efnis.

Í þremur reglugerðum vegna næsta fiskveiðiárs, sem birtar voru á dögunum í Stjórnartíðindum, má lesa að leyfilegur heildarafli íslenskra skipa í þorski verður 206 þúsund tonn sem er 6,34% skerðing frá fiskveiðiárinu sem er að líða. Þá skerðist einnig leyfilegur heildarafli í gullkarfa um 5.939 tonn eða tæplega 21%

Heimilt verður að veiða mun meira af ýsu eða rúm 60 þúsund tonn, í samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar sem birt var í júní. Um er að ræða tæplega 47% aukningu milli fiskveiðiára.

Tíu þúsund tonn til strandveiða

Reglugerð um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2022/2023 gerir ráð fyrir að veiðiheimildir fyrir 10 þúsund tonnum af þorski verði ráðstafað strandveiðum, á það einnig við um þúsund tonn af ufsa og hundrað tonn af gullkarfa. Um er að ræða sömu ráðstöfun og við útgáfu reglugerðarinnar í fyrra og sæta strandveiðar því ekki sömu skerðingu í þorski og útgerðir aflamarkskerfinu, þó er um að ræða minni afla en strandveiðarnar skiluðu í sumar.

mbl.is