Til greina kemur að mál Erlu Bolladóttur fari til Mannréttindadómstóls Evrópu, en endurupptökudómur hafnaði í síðustu viku beiðni Erlu Bolladóttur um um endurupptöku á máli Hæstaréttar nr. 214/1978 frá 22. febrúar 1980, að því er varðar rangar sakargiftir á hendur Magnúsi Leópoldssyni, Einari Gunnari Bollasyni, Valdimar Olsen og Sigurbirni Eiríkssyni.

„Ég hef sett mér það að meðan það er leið, þá fer ég hana,“ sagði Erla Bolladóttir á blaðamannafundi sem hún boðaði til vegna niðurstöðu endurupptökudómsins.
Sigrún Ingibjörg Gísladóttir, lögmaður Erlu, tók undir með henni að skoðað yrði hvort farið yrði með málið til Mannréttindadómstólsins. Til þess að það væri hægt yrði að vera komin endanleg niðurstaða í málið innanlands, sem liggur nú fyrir með úrskurði endurupptökudómstólsins.
Erla greindi frá því á fundinum að hún hefði greinst með ólæknandi krabbamein og sagðist hún eiga þá ósk heitasta að fá lyktir í málið.
„Ég á enga ósk heitari hvað mig persónulega varðar en að þetta mál fái sín endalok og að það fari fram formlega jarðarför á öllu saman. Það gerist ekki nema réttlætið komi fram.“
Endurupptökunefnd hafnaði máli Erlu árið 2017 en ákveðið var að taka upp mál þeirra sem dæmdir voru fyrir aðild að hvarfi Guðmundar Einarssonar í Hafnarfirði í janúar 1974 og Geirfinns Einarssonar í Keflavík í nóvember árið 1974. Voru þeir sýknaðir í Hæstarétti árið 2018.
Héraðsdómur felldi úrskurð endurupptökunefndar úr gildi í janúar á þessu ári og í kjölfarið fór mál Erlu fyrir endurupptökudómstólinn, sem hefur nú hafnað endurupptöku á málinu.