Að minnsta kosti níu létu lífið og 28 særðust þegar íranski herinn gerði loftárás á svæði Kúrda í Írak í dag.

Íranski herinn hefur undanfarna daga sakað hóp Kúrda, sem er með aðsetur á svæðinu, um að kynda undir mótmæli sem brutust út í kjölfar þess að Masha Amini, 22 ára kona, lést í haldi lögreglu. Hún hafði verið handtekin fyrir að klæðast höfuðslæðu á „óviðeigandi“ hátt.
Stjórnvöld í Þýskalandi hafa gagnrýnt loftárásina og sagt hana óásættanlega.
„Við erum afar áhyggjufull yfir árásum Íran á svæði Kúrda á meðan pólitísku mótmælin standa yfir,“ sagði talsmaður þýska utanríkisráðuneytisins.
Þá hafa stjórnvöld í Bretlandi einnig hvatt Íran til að binda enda á árásir á svæði Kúrda.
„Þessar árásir eru brot gegn fullveldi og landhelgi Írak og er algjörlega óviðunandi,“ sagði Tariq Ahmad, aðstoðarutanríkisráðherra Bretlands.