Hér er á ferðinni alvöru huggulegheitamatur sem tekur enga stund að græja. Bragðmikil tómatsósa, pasta og nóg af bræddum osti tikkar í öll boxin hjá ungum sem öldnum. Dásamlegur pastaréttur sem dugar fyrir 3-4.
Hér er á ferðinni alvöru huggulegheitamatur sem tekur enga stund að græja. Bragðmikil tómatsósa, pasta og nóg af bræddum osti tikkar í öll boxin hjá ungum sem öldnum. Dásamlegur pastaréttur sem dugar fyrir 3-4.
Bakað tómatpasta með mozzarellakúlum
4 skammtar
- 300 g þurrkað pasta að eigin vali
- 1 stk. lítill laukur
- 3 stk. hvítlauksrif, 2-3 stk.
- 1⁄2 tsk. þurrkaðar chili flögur, má vera minna
- 2 msk. smjör
- 2 msk. tómatpaste
- 1 dós maukaðir tómatar
- 1 dl rjómi
- salt og pipar
- 2 dósir mozzarella kúlur (360 g)
- fersk basilíka og rifinn Feykir
Aðferð:
- Sjóðið pastað skv. leiðbeiningum á pakka og gerið sósuna á meðan pastað sýður.
- Saxið lauk og hvítlauk og steikið upp úr smjörinu ásamt smá chilliflögum, salti og pipar þar til mýkist.
- Setjið tómatpaste á pönnuna ásamt tómötum úr dós og rjóma hrærið þessu vel saman.
- Setjið dálítið vatn í tómatdósina ef ykkur finnst sósan þykk og hellið yfir.
- Leyfið að malla og smakkið til með salti og pipar.
- Ef þið eigið ferska basilíku er mjög gott að setja dálítið af henni út í líka en má sleppa.
- Hellið vatninu af soðnu pastanu en geymið smá pastasoð.
- Setjið pastað saman við sósuna á pönnunni og hrærið vel saman.
- Bætið dálitlu pastasoði samanvið ef ykkur finnst þurfa að þynna sósuna.
- Hitið grillið í ofninum á hæsta styrk og setjið réttinn í eldfast mót.
- Hellið mozzarella kúlunum á pappír og þerrið þær aðeins áður en þið rífið þær í tvennt og raðið ofan á pastaréttinn.
- Bakið við háan hita þar til osturinn er gullinbrúnn.
- Berið fram með rifnum Feyki og ferskri basilíku og njótið!
Höfundur: Helena Gunnarsdóttir
Ljósmynd/Helena Gunnarsdóttir