Hversu vel heppnað getur eitt eldhús verið? Hér sjáum við einstaklega fallega eldhúshönnun í nýbyggðu einbýlishúsi á Reykjanesi.

Það er fátt sem gleður matarhjörtun okkar hér á vefnum meira, en góður matur og falleg eldhús. Þetta umrædda eldhús er staðsett á Reykjanesi, en húsið er hannað af Sigurði Hallgrímssyni og innanhússhönnunin var í höndum Guðbjargar Magnúsdóttur hjá Minimum. Hér sjáum við sérsmíði af bestu og vönduðustu gerð - en innréttingin er smíðuð úr reyktri eik frá Grindinni og steinninn í eldhúsinu er frá Granítsmiðjunni. Viðurinn fær síðan að njóta sín í framhaldi af eldhúsinu í anddyrinu og á skenk inn í borðstofu.