„Staðan virðist vera svipuð og verið hefur,“ segir Böðvar Sveinsson náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, um hlaup í Grímsvötnum.

„Það getur verið að við náum toppinum á vatnsflaumnum sem rennur undan jöklinum í nótt. En það er erfitt að meta rennslið í Gígjukvísl því hún grefur sig svo. En við ættum að sjá flóðatoppinn niðri við brú í dag. En þetta er ekkert svakalegt flóð,“ segir hann.
Böðvar segir að verið sé að fylgjast með eldstöðinni vegna lækkunar á þrýstings sem gæti hugsanlega leitt til eldgoss. „Við erum samt ekki að sjá nein merki um það ennþá, en við fylgjumst grannt með þessu," segir hann og bætir við að eldstöðin sé líka komin á tíma, en síðast gaus árið 2011 og yfirleitt eru gos í Grímsvötnum með um það bil tíu ára millibili.