„Ég var að prófa gnocchi í fyrsta skipti og ætla ég alveg að segja að ég var smá skeptísk á þetta í upphafi þar sem þetta er aðeins önnur áferð en á venjulegu pasta,“ segir Berglind Hreiðarsdóttir á Gotteri.is um þessa uppskrift sem við köllum hinn fullkomna kósímat.
„Ég var að prófa gnocchi í fyrsta skipti og ætla ég alveg að segja að ég var smá skeptísk á þetta í upphafi þar sem þetta er aðeins önnur áferð en á venjulegu pasta,“ segir Berglind Hreiðarsdóttir á Gotteri.is um þessa uppskrift sem við köllum hinn fullkomna kósímat.
„Gnocchi er þéttara í sér og stífara undir tönn en almáttugur þessi baka var undursamleg og virkilega gaman að prófa að breyta aðeins út af vananum með hefðbundið pasta!“
Gnocchi-baka
Fyrir 4-6
- 3 kjúklingabringur frá Rose Poultry
- 300 g frosið rósakál
- 200 g kastaníusveppir
- 3 hvítlauksrif
- 1 pakki DeCecco-gnocchi (500 g)
- 350 ml rjómi
- 200 g Philadelpia-rjómaostur
- 100 g rifinn Primadonna/Grettir ostur
- ólífuolía til steikingar
- sítrónusneiðar til skrauts
- smjör til steikingar
- salt, pipar, hvítlauksduft, kjúklingakrydd, cheyennepipar
Aðferð:
- Hitið ofninn í 180°C.
- Skerið kjúklingabringurnar í tvennt, langsum svo úr verði sex einingar.
- Sjóðið rósakálið í átta mínútur og hellið í sigti, leyfið vatninu að leka vel af.
- Steikið kjúklinginn upp úr olíu til að loka bringunum og brúna allar hliðar. Kryddið eftir smekk, leggið í eldfast mót.
- Sneiðið sveppina, bætið smjöri á pönnuna og steikið þá við meðalháan hita og kryddið eftir smekk þar til þeir fara að mýkjast. Setjið þá hvítlaukinn saman við síðustu mínútuna og bætið sveppunum næst í fatið með kjúklingnum.
- Bætið aftur smjöri og olíu á pönnuna og steikið næst rósakálið, kryddið eftir smekk og bætið því síðan við í eldfasta mótið.
- Sjóðið þá gnocchi á eftir rósakálinu (í tvær mínútur), sigtið vatnið af og bætið næst í eldfasta mótið.
- Næst má gera sósuna með því að hella rjómanum á pönnuna, rífa ostinn og bæta rjómaostinum saman við. Hrærið við meðalháan hita þar til jöfn sósa myndast og kryddið eftir smekk.
- Hellið sósunni yfir allt í fatinu, blandið létt saman, skreytið með sítrónusneiðum og setjið í ofninn í 25 mínútur. Gott er að hafa álpappír yfir fyrstu 15 mínúturnar og taka hann síðan af í lokin.
- Rífið meiri Primadonnu/Gretti-ost yfir ef þess er óskað.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir